Nýtt og bætt umsóknarferli auðveldar nú fólki að fá afrit af ökuskírteini eða uppfæra eldri skírteini. Með breytingunum geta margir lokið umsóknarferlinu alfarið á vefnum, án þess að þurfa að mæta til sýslumanns. Greint er frá þessu í tilkynningu á Ísland.is.
Á hverju ári eru pantaðar um 3.800 endurprentanir á ökuskírteinum, til dæmis þegar skírteini týnist eða þegar ljósmynd, númer eða stimpill er orðinn óskýrt.
Umsókn á netinu sparar tíma og spor
Ef umsækjandi er með gildandi mynd í skilríkjaskrá, til dæmis úr vegabréfi, er nú hægt að nota hana beint í umsókninni, að því gefnu að myndin uppfylli aldursskilyrði og að ökuréttindi þurfi ekki endurnýjun á næstu sex mánuðum. Þá þarf hvorki að skila inn nýrri ljósmynd né rithandarsýnishorni hjá sýslumanni.
Á vef Ísland.is er dregið fram hvaða þýðingu þetta hefur:
- þú sparar tíma og ferðir
- þú getur sótt um hvar og hvenær sem er
- umsóknarferlið er einfaldara og hraðara
- auðveldara er að uppfæra eldri gerð ökuskírteini eða óskýra ljósmynd
Greining sýnir að um 76.000 einstaklingar á Íslandi eru enn með eldri gerð af ökuskírteini. Þeir geta nýtt þessa nýju umsókn og uppfært ökuskírteini sitt án heimsóknar til sýslumanns. Markmið breytingarinnar er að bæta aðgengi að þjónustu, stytta afgreiðslutíma og gera ferlið notendavænna. Um leið dregur úr bið og álagi í afgreiðslu hjá sýslumönnum.

