• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Þorsteinn Már kemur aftur til starfa

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. mars 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Stjórn Samherja ákvað í dag að Þorsteinn Már Baldvinsson snúi aftur til starfa og verði forstjóri við hlið Björgólfs Jóhannssonar sem gegnir forstjórastarfi sínu áfram þar til annað verður ákveðið. Þetta kemur fram í svohljóðandi tilkynningu frá Samherja:
Í nóvember 2019 ákvað Þorsteinn Már að stíga tímabundið til hliðar sem forstjóri á meðan fram færi rannsókn á starfsemi dótturfélaga Samherja í Namibíu. Rannsóknin, sem er vel á veg komin, heyrir undir stjórn Samherja og er í höndum norsku lögmannsstofunnar Wikborg Rein. Stjórn Samherja fól Björgólfi Jóhannssyni að veita Wikborg Rein alla mögulega aðstoð í krafti stöðu sinnar sem starfandi forstjóri Samherja.
Af alkunnum ástæðum glíma þjóðir heims nú við aðstæður sem eru án hliðstæðu. Hér á landi loka fyrirtæki eða draga úr starfsemi, starfsfólk er án atvinnu og stjórnvöld grípa til stórtækari björgunaraðgerða en dæmi eru um. Fæðuöflun, matvælaframleiðsla, veiðar og vinnsla sjávarfangs munu skipta sköpum í núverandi ástandi.
„Þorsteinn Már Baldvinsson fær það verkefni að leiða aðgerðir Samherja vegna þeirra fáheyrðu aðstæðna sem eru uppi vegna útbreiðslu Covid-19. Stjórn Samherja telur að sterk forysta með ítarlega þekkingu á mannauði, veiðum, vinnslu, sölu, flutningum og öllum öðrum rekstri samstæðunnar muni skipta sköpum í þeim aðgerðum sem ráðast þarf í. Þorsteinn Már hefur áður stýrt Samherja í gegnum íslenska bankahrunið og alþjóðlegu fjármálakreppuna með framúrskarandi árangri. Stjórn Samherja telur því að enginn sé betur í stakk búinn að takast á við núverandi aðstæður,“ segir Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarformaður Samherja.
Rannsókn á starfseminni í Namibíu mun halda áfram óháð breytingum á yfirstjórn samstæðunnar. Wikborg Rein mun áfram heyra beint undir stjórn Samherja og Björgólfur Jóhannsson mun áfram veita lögmannsstofunni allar þær upplýsingar og þá aðstoð sem hún þarf. Þótt reikna megi með töfum á rannsókninni vegna þeirrar fáheyrðu stöðu sem er uppi er enn stefnt að því að ljúka henni í vor. Verða niðurstöðurnar kynntar fyrir stjórn Samherja og þar til bærum stjórnvöldum strax í kjölfarið.
Eins og greint var frá hinn 17. janúar hyggst Samherji innleiða sérstakt kerfi fyrir stjórnarhætti og regluvörslu. Nýja kerfið verður hluti af stjórnun Samherja samstæðunnar og mun ná til Samherja og allra dótturfélaga. Sem forstjóri við hlið Þorsteins Más mun Björgólfur Jóhannsson áfram stýra innleiðingu kerfisins. Vinnu vegna þess miðar vel og er búist við að henni ljúki síðar á þessu ári.
Um þessar mundir kappkostar Samherji að halda skipum sínum til veiða. Þá mun framleiðsla í fiskvinnsluhúsum á Dalvík og Akureyri halda áfram að því marki sem sóttvarnareglur heimila. Reynt hefur verið eftir fremsta megni að halda öllum söluleiðum opnum, bæði hér á landi og erlendis. Allt starfsfólk Samherja hefur á sinn einstaka hátt tekið þátt í miklum breytingum, óþægindum og álagi sem þessu fylgir með því staðfasta markmiði að sem minnst tjón verði fyrir samfélagið.
F.h. stjórnar Samherja,
Eiríkur S. Jóhannsson, formaður.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    209 deilingar
    Share 84 Tweet 52
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?