• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 27. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Verðlag í Bónus hækkar um 1,8%

Páskaegg eru ódýrust í Prís – Mestar hækkanir á Bónus eggjum milli ára

Páskaeggin hækka minnst í Prís og Fjarðarkaupum  

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. mars 2026
in Fréttir, Innlent, Neytendur
A A
0

Ódýrustu páskaeggin er að finna í Prís samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Þar hækka þau jafnframt einna minnst í verði milli ára. Verð á páskaeggjum merktum Bónus hækkar mest milli ára og líka ef borið er saman við árið 2024. Gjarnan geta neytendur gert betri kaup í stærri páskaeggjum sem eru iðulega með lægsta kílóverðið. Í þessu tilfelli var lægsta kílóverðið ekki að finna á stóru páskaeggi, heldur á Okkar eggi númer 4, 250 gr.  í Prís. 

Verð á páskaeggjum í Prís og Fjarðarkaupum hækkaði að meðaltali um minna en 1% milli ára, en hækkaði um 9% í Bónus, Krónunni og Nettó og um 10% í Hagkaup.

Mesta úrvalið af páskaeggjum var að finna í vefverslun Krónunnar, þar sem mátti finna 53 páskaegg. Í Kjörbúðinni og Extra var úrvalið minnst, eða 7 páskaegg í hvorri verslun þegar verðlagseftirlitið for á vettvang. Í Krambúðinni fundust 12 páskaegg, 41 í Prís, 43 í Fjarðarkaupum, 47 í Bónus, 48 í Nettó og 53 í Hagkaup.

Páskaeggin ódýrust í Prís

Lægsta verð páskaeggja var að jafnaði að finna í Prís og voru þau næst ódýrust í Bónus þar sem verðið var að meðaltali 4% hærra. Í öllum tilfellum kostuðu páskaegg í Krónunni einni krónu meira en í Bónus. Í Fjarðarkaupum var verð páskaeggja það sama og í Krónunni í 26 af 39 tilfellum.

Lægsta kílóverð á einstökum páskaeggjum var á Okkar eggi númer 4 í Prís, en það kostaði 1.099kr og vegur 250gr. Í fyrra voru bestu kaupin á stórum eggjum, en þau eru nú í öðru sæti (Góu páskaegg nr. 11 í Prís) og þriðja sæti (Bónus risaegg). Neytendum er bent á að finna má nýjustu tölur og vörulista í heild sinni á Verðlagseftirlit.is.

Mestar hækkanir á Bónus eggjum milli ára

Verð páskaeggja hefur hækkað mismikið eftir framleiðendum. Ef verð eru borin saman við verðin 2024 hefur verð á Bónus páskaeggjum hækkað mest, eða um 37%, en verð á páskaeggjum Nóa Síríus hækkað minnst, um 13%. Bónus páskaegg eru framleidd af Góu, en Góu-egg hækkuðu að meðaltali um 31%. Sanbó egg hafa hækkað um 33% á sama tímabili, en verðið hefur staðið frá árinu 2025.

Um könnunina 

Borið var saman meðalverð páskaeggja milli mars 2024, mars 2025 og mars 2026. Í samanburði á verðbili milli Prís og Bónus annars vegar og Krónunnar og Bónus hins vegar var skoðað verð fimmtudagsins 19. mars. Í samanburði á verði í Fjarðarkaupum og Krónunni var skoðað verð laugardagsins 21. mars. Lægsta kílóverð var byggt á verðtöku 19. mars, utan verðpunkts í Fjarðarkaupum sem var mældur 21. mars. Verð páskaeggja getur hreyfst talsvert í aðdraganda páska, hægt er að skoða nýjustu tölur verðlagseftirlitsins á verdlagseftirlit.is. 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Fólk skilið eftir án tekna mánuðum saman hjá Virk og Tryggingastofnun

    Fólk skilið eftir án tekna mánuðum saman hjá Virk og Tryggingastofnun

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Daði Már Kristófersson fær uppsagnabréf án áminningar

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Lögreglumenn staðfestu tengsl við Hamas hryðjuverkasamtökin

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Embætti sýslumanns laust til umsóknar

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Kona sökuð um kynferðislega misnotkun, barsmíðar, svelti, heilaþvott og fleira

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?