„Fötluðu fólki hefur ekki verið auðveldað að taka þátt í orkuskiptum. Bifreiðakaupastyrkir Tryggingastofnunar hafa varla hækkað frá árinu 2009“
Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um drög að hvítbók um samgöngumál
Íslenskt samfélag hefur ekki verið byggt með þeim hætti að allir geti sem best notið. Fatlað fólk hefur setið á hakanum varðandi aðgengi sem hamlar því að það geti lifað sjálfstæðu lífi.
Til stendur að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, SRFF, en í honum eru skuldbindingar á hendur íslenskra stjórnvalda að „bera kennsl á og útrýma hindrunum og tálmunum aðgengis, skulu meðal annars ná til bygginga, vega, samgangna og annarrar aðstöðu innan dyra sem utan,“ skv. 9. gr. og „gera árangursríkar ráðstafanir til þess að tryggja að fatlað fólk geti farið allra sinna ferða og tryggja sjálfstæði þess í þeim efnum, eftir því sem frekast er unnt, meðal annars með því að greiða fyrir því að fatlað fólk geti farið allra sinna ferða með þeim hætti og á þeim tíma sem það kýs og á viðráðanlegu verði“ skv. 20. gr.
ÖBÍ réttindasamtök fagna því að í hvítbók um samgöngumál sé borið kennsl á og gerðar ráðstafanir til að fjarlægja aðgengishindranir fatlaðs fólks í samgöngum.
Góðir innviðir, þ.á.m. samgöngur, rjúfa einangrun og stuðla að betra og sjálfstæðara lífi fatlaðs fólks. Þeir gera því frekar kleift að stunda atvinnu og nám, iðka tómstundir og líkamsrækt og umgangast vini og fjölskyldu, en ekki síður minnka þeir þjónustuþörf þess og eru hagkvæmir öllu samfélaginu.
Algild hönnun er skilvirk hönnun og þegar samgönguáætlanir munu fyrst taka mið af þörfum fatlaðs fólks í umferðinni þá verður afraksturinn betri fyrir alla. Hagkvæmar samgöngur eru þær sem nýtast öllum sem best. Því er undarlegt að það teljist ekki til lykilviðfangsefna í áætluninni að mæta þeim.
Þegar kemur að viðhaldi í samgönguinnviðum eru stjórnvöld hvött til að þess sé gætt að nýta tækifærið og byggja upp og bæta aðgengi fyrir fatlað fólk. Vegagerðin hefur gefið út afar góðar leiðbeiningar sem rétt væri að fara eftir við allar framkvæmdir utandyra um allt land.[1]
Bent er á að íslensk löggjöf skyldar aðila til að gera samgöngumannvirki aðgengileg fyrir alla við uppbyggingu eða endurbætur, að þjálfa starfsfólk í þjónustu við fatlaða, að gera allar upplýsingar aðgengilegar og upplýsandi um aðgengi og síðast en ekki síst að taka aðeins í notkun almenningssamgöngutæki, hvort sem eru almenningsvagnar, flugvélar eða bátar, sem eru aðgengileg fötluðu fólki jafnt sem ófötluðu. Því hefur ekki verið vel framfylgt.
Það er mikilvægt að efla og auka vægi almenningssamgangna um land allt. Það styrkir byggðir landsins, er umhverfisvænt og gefur fólki aukið val um að nýta aðra samgöngumáta en einkabílinn. Strætisvagnar eru að mestu leyti óaðgengilegir hreyfihömluðu fólki, sérstaklega landsbyggðastrætó og biðstöðvar eru í lamasessi eins og sjá má í úttekt sem ÖBÍ lét framkvæma.[2]
Flugrútan er heldur ekki aðgengileg hreyfihömluðu fólki og getur kostnaður þess til ferðalaga því verið talsvert hærri en annarra og varla hægt að segja að Keflavíkurflugvöllur mæti þörfum millilanda- og tengiflugs fyrir fatlaða flugfarþega. Því er ánægjulegt að sjá að til standi að móta uppbyggingaráætlun til að takast á við þennan vanda, sbr. aðgerð 4.1.2, sem vonandi tekst að fjármagna.
Vegna þessa hefur fatlað fólk enn lítið svigrúm til að taka þátt í uppbyggingu umhverfislega sjálfbærra samgangna en rétt er að benda á að margt fatlað fólk er og verður háð einkabílnum um að komast milli staða. Því verður að gæta betur að því að þrengingar og fækkun bílastæða í nafni sjálfbærni og lýðheilsu verði ekki til að fjölga hindrunum.
Fötluðu fólki hefur ekki verið auðveldað að taka þátt í orkuskiptum. Bifreiðakaupastyrkir Tryggingastofnunar hafa varla hækkað [3] frá árinu 2009 og því neyðast margir til að keyra áfram á gömlum skrjóðum með síauknum viðhalds- og eldsneytiskostnaði. Einnig eru hleðslustöðvar fyrir rafbíla mjög víða óaðgengilegar fötluðu fólki því engar reglur hafa verið settar um staðsetningu þeirra.
Aðgengishópur ÖBÍ sá sig tilneyddan til að senda ábendingar [4] til helstu uppsetningaraðila vorið 2022 í von um að það myndi auka vitund þeirra og framkvæmdagleði. Því er gleðilegt að nú eigi að móta hönnunarleiðbeiningar vegna hleðslustöðva, sbr. aðgerð 4.1.3, en tímaramminn er ansi rúmur. Það er hægt að útbúa góðar leiðbeiningar á skömmum tíma og er mikilvægt því uppbygging hleðslustöðva fyrir rafbíla er gríðarlega ör.
Að gefnu tilefni er ítrekað að stjórnvöldum er skylt að hafa virkt samráð við heildarsamtök fatlaðs fólks um ákvarðanir sem varða hagsmuni þess, samkvæmt ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), enda segir í 3. mgr. 4. gr., „aðildarríkin skulu, þegar þau undirbúa og beita löggjöf sinni og stefnu samningi þessum til framkvæmda og vinna að ákvarðanatöku um málefni fatlaðs fólks, hafa náið samráð og tryggja virka þátttöku fatlaðs fólks, þ.m.t. fötluð börn, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd“.
Ekkert um okkur án okkar.
Með vinsemd og virðingu,
Þuríður Harpa Sigurðardóttir
formaður ÖBÍ
Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ
Heimildir & tilvísanir
1 Reykjavíkurborg og Vegagerðin. (2019). Hönnun fyrir alla: Algild hönnun utandyra [Leiðbeiningar PDF]
2 ÖBÍ réttindasamtök. (2022, 17. nóvember). „Slæmt aðgengi að nærri öllum biðstöðvum strætisvagna á landsvísu“ [Frétt]
3 Fjárhæðir hækkuðu fyrst með reglugerð nr. 997/2015 þrátt fyrir að verðlag hafði hækkað umtalsvert á 6 ára tímabili. Aftur voru fjárhæðir hækkaðar árið 2021, en í þetta sinn aðeins á sérútbúnum og dýrum bifreiðum, með reglugerð nr. 905/2021.
4 Sjá fylgiskjal með umsögninni.
Drög að hvítbók um samgöngumál og umhverfismatsskýrsla. Mál nr. 66/2023. Innviðaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 21. apríl 2023[/vc_column_text][/vc_column][/vc_row]