Metár virðist vera framundan á Íslandi varðandi hópnauðganir, það kom fram í viðtali við Drífu Snædal forstöðukonu Stígamóta. Meðaltal slíkra nauðgana eru sex skipti á ári en nú í apríl er þegar búið að kæra sex nauðganir til lögreglu. Stígamót segja að alls ekki allar nauðganir séu kærðar til lögreglu.
Fréttamiðillinn Fréttin.is fjallar um eina slíka hópnauðgun og byggir fréttina á heimildum, hægt er að lesa þá frétt hér að neðan og smella á tengil neðst til að lesa um fleiri slík mál hjá frettin.is :
,,Fréttinni hefur borist upplýsingar um alvarlega hópnauðgun sem kom upp um páskana, þar sem erlendir menn eru grunaðir um að hafa brotið kynferðislega á 16 ára stúlkubarni.
Mennirnir voru níu talsins sem nauðguðu 16 ára barni
Samkvæmt heimildum var 16 ára stúlka á göngu heim til sín úr miðbæ Reykjavíkur, þegar að erlendir menn nálguðust hana á fólksbíl, hrifsuðu upp í bílinn og frelsissviptu. Upptökur af frelsissviptingunni liggja fyrir hjá lögreglu samkvæmt sömu heimildum.
Skiptust á að nauðga stúlkunni
Ekið var með stúlkuna á ótilgreindan stað þar sem mennirnir brutu á barninu kynferðislega og skiptust á að nauðga stúlkunni í um þrjár klukkustundir. Eftir að hafa níðst á stúlkunni klukkutímum saman, var ekið með hana í íbúð í Vesturbænum, þar sem fleiri menn héldu sig til og brutu þeir allir á henni í sjö klukkustundir til viðbótar. Mennirnir voru níu talsins í heildina.
Hælisleitendur frá Palestínu og Tyrklandi
Samkvæmt heimildarmanni sem tengist stúlkunni fjölskylduböndum eru gerendurnir hælisleitendur frá Palestínu og Tyrkir.
Í kvöldfréttum 16. apríl á Stöð 2 kom fram að hér á landi hefðu verið framdar sex hópnauðganir á þessu ári og yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglu, Bylgja Hrönn, segir þetta vera aukningu frá fyrri árum, þetta er því sjöunda hópnauðgunin sem kemur upp í ár og má því líkja ástandinu við faraldur.
Mennirnir ganga frjálsir um í Reykjavík
Gerendurnir í öllum þessum kynferðisbrotamálum eru erlendir og sagðir vera á aldrinum átján ára til fertugs. Lögreglan hefur ekki enn gefið út tilkynningu um málið eða handtökuskipun á hendur mönnunum.
Fréttin hefur sent Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu fyrirspurn vegna málsins og bíður svara. Fréttin verður uppfærð þegar svör berast.“ –
Hér er tengill inn á fréttir hjá Frettin.is