• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fjármálaáætlun endurspegli loforð og tryggi félagslega framþróun

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. maí 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Stjórnvöld hafa boðað breytingar á samþykktri fjármálastefnu og fyrirliggjandi tillögu um fjármálaáætlun til næstu fimm ára sem nú er til meðferðar á Alþingi. Þetta eru viðbrögð við breyttum spám um þróun efnahagsmála en gert er ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs verði um 40 milljörðum króna lakari en núverandi fjármálaáætlun gerir ráð fyrir. Sú staða sem upp er komin er langt frá því að vera ófyrirséð.
ASÍ áréttar mikilvægi þess að fjármálaáætlun endurspegli þau loforð sem stjórnvöld hafa gefið launafólki í tengslum við nýafstaðna kjarasamninga og að fyrirheit um skattkerfisbreytingar til handa launafólki skili sér án tafa. Áformaðar breytingar mega ekki verða til þess að draga úr getu ríkissjóðs til þess að standa undir heilbrigðis- og velferðarþjónustunni og tryggja uppbyggingu nauðsynlegra samfélagsinnviða eða leiða til aukinna notendagjalda og nefskatta. Verkalýðshreyfingin mun aldrei samþykkja að hinni félagslegu framþróun sé ógnað með því að grundvallarstoðir velferðarkerfisins séu nýttar til þess að jafna sveiflur í ríkisrekstirnum.
Stefna stjórnvalda í ríkisfjármálum hefur byggt á því að afgangur af ríkisrekstrinum grundvallast fyrst og fremst á tímabundinni aukningu tekna vegna mikilla umsvifa á uppgangstímum sem eiga sér fá fordæmi. Þegar tekið hefur verið tillit til hagsveiflunnar hefur rekstur ríkisins í reynd verið í járnum undanfarin ár. Samhliða þessu hafa tekjustofnar markvisst verið veiktir. Má þar nefna afnám auðlegðarskatts, lækkun veiðigjalda, lækkun á neyslusköttum og tollum auk þess sem stjórnvöld hafa látið hjá líða að sækja auknar tekjur t.d. til ferðþjónustunnar. ASÍ hefur ítrekað gagnrýnt þessa stefnu og haft uppi varnaðarorð um að afleiðingarnar verði þær að þegar hægir á í efnahagslífinu muni tekjur ríkissjóðs ekki duga til að fjármagna nauðsynleg útgjöld. Þá blasir við aðhald og niðurskurður í ríkisrekstrinum.  Þessi staða raungerist í fyrirliggjandi fjármálaáætlun.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    67 deilingar
    Share 27 Tweet 17
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?