Breyting á reglugerð um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald
Eftir þessa breytingu (reglugerð nr. 649/2018) mun veiting rekstrarleyfa til gististaða fara eftir sömu leikreglum og fyrir gildistöku reglugerðar nr. 1277/2016. Þannig mun leyfisveitandi enn afla umsagna við umsókn um rekstrarleyfi hjá eftirtöldum aðilum; sveitarstjórn sem staðfestir að staðsetning gististaðar sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag þess kveður á um, heilbrigðisnefnd, byggingarfulltrúa, slökkviliði,
Vinnueftirlitinu og lögreglu. Jafnframt er gerð krafa um að gististað skuli aðeins starfrækja í húsnæði sem byggingaryfirvöld hafa samþykkt og skuli vera í samræmi við gildandi skipulag á viðkomandi svæði en ekki verður lengur gerð ófrávíkjanleg krafa um skilgreiningu viðkomandi húsnæðis sem atvinnuhúsnæðis.
Umræða