Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum og er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.
Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gunnar.runar@lrh.is Þótt myndirnar séu dálítið óskýrar má ætla að þær geti gefið góðar vísbendingar um hver maðurinn er.
Umræða