50% líkur á að hitamet upp á 35,6 gráður falli
Veðurspáin fyrir suður Noreg er upp á það að hitamet falli víða á svæðinu en þann 26 júní s.l. var hiti mædlur 33,8 gráður og nú er spáð enn meiri hita.
Spennandi verður að sjá hvort að hið 48 ára gamla hitamet sem var upp á 35,6 gráður falli í dag en veðurfræðingar telja að það geti verið u.þ.b. 50% líkur á að svo verði.
Til þess að metið falli, verður himininn að vera alveg laus við öll ský, vindátt að vera hagstæð og öll skilyrði upp á sitt besta svo að það náist segir veðurfræðingur.
Sumarið hefur verið eitt það hlýjasta í sögunni og þá skiptir engu máli hvort um er að ræða suður eða norður Noreg.
Veðurspáin er ótrúlega góð fyrir daginn í dag og svo er að sjá hvort að hún gangi eftir.
Hitamet hafa víða fallið í sumar og kannski fellur hið tæplega háfrar aldar hitamet í dag?
Eggert Skúli Jóhannesson