Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, heldur til Parísar á morgun, þriðjudaginn 27. ágúst, og sækir þar Paralympics leikana í boði Íþróttasambands fatlaðra ásamt eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni.
Síðdegis á miðvikudegi býður Emmanuel Macron Frakklandsforseti forsetahjónum ásamt öðrum gestum til móttöku í Elysée höllinni. Um kvöldið verður svo opnunarhátíð leikanna á Concorde-torgi og sækja hana mörg þúsund íþróttamenn frá meira en 180 löndum auk margra þjóðhöfðingja og annarra ráðamanna.
Á fimmtudaginn fylgjast forsetahjónin með leikunum og á föstudaginn heimsækja þau Ólympíuþorpið og hitta að máli íslenska keppendur og þjálfara auk forystumanna íþróttahreyfingar fatlaðra.
Umræða