Hugleiðingar veðurfræðings
Nokkuð hefur snjóað á Suðvestur- og Suðurlandið í nótt en úrkomusvæðið mun fara austur eftir landinu í dag og er því von á nokkurri snjókomu á Suðausturland og síðar Austfirði. Víða verður austlæg átt á bilinu 8-15 m/s en norðaustan 13-18 á Vestfjörðum og Breiðafirði. Í kvöld dregur svo úr vindi og léttir smám saman syðra. Frost 0 til 10 stig.
Spá gerð: 27.12.2022 06:47. Gildir til: 28.12.2022 00:00.
Veðuryfirlit
Um 300 km NV af Þrándheimi er 977 mb lægð sem hreyfist NA, en við suðurströndina er 992 mb smálægð sem fer A. Yfir Grænlandi er 1020 mb hæð. Samantekt gerð: 27.12.2022 07:45.
Veðurhorfur á landinu
Austlæg átt, víða 8-15 m/s, en norðaustan 13-18 norðvestantil. Snjókoma suðaustanlands og síðar á Austfjörðum, en annars él. Dregur úr vindi í kvöld, en áfram allhvass vindur á Vestfjörðum. Léttir smám saman til syðra í kvöld.
Gengur í norðaustan 8-15 m/s eftir hádegi á morgun, en 15-23 suðaustanlands og á Austfjörðum. Snjókoma austantil á landinu, él norðanlands fram eftir degi en annars bjart með köflum. Frost 0 til 10 stig, kaldast inn til landsins á Norðurlandi Eystra.
Spá gerð: 27.12.2022 10:46. Gildir til: 29.12.2022 00:00.
Gul viðvörun vegna veðurs: Austfirðir og Suðausturland
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Suðvestan 5-10 m/s og él, en í norðan 5-10 og styttir upp í kvöld. Norðan og norðaustan 8-13 og léttskýjað á morgun. Frost 0 til 6 stig.
Spá gerð: 27.12.2022 10:40. Gildir til: 29.12.2022 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðlæg átt 5-13 m/s, en 10-18 suðaustantil. Víða él en bjart að mestu sunnan heiða. Frost 6 til 12 stig.
Á föstudag:
Norðlæg átt 5-13, hvassast austast. Dálítil él, en bjart að mestu um sunnanvert landið. Talsvert frost.
Á laugardag (gamlársdagur):
Snýst í austlæga átt 5-13, hvassast vestast. Víða él eða snjókoma, en þurrt að kalla norðaustantil. Dregur úr frosti.
Á sunnudag (nýársdagur):
Suðlæg eða breytleg átt og él í flestum landshlutum en bjart að mestu á Austurlandi. Frost 4 til 12 stig.
Á mánudag:
Útlit fyrir suðlæga átt með úrkomu, einkum um kvöldið en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Talsvert frost en hlýnar sunnantil seinnipartinn.
Spá gerð: 27.12.2022 08:21. Gildir til: 03.01.2023 12:00.