Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál sem snýr að skemmdum sem voru unnar á bifreið borgarstjórans í Reykjavík, en málið er litið mjög alvarlegum augum.

Rannsóknin beinist m.a. að því hvort skotvopn hafi verið notað við verknaðinn og eins hvort málið tengist öðru frá því í síðustu viku þar sem voru unnar skemmdir á húsnæði Samfylkingarinnar í Sóltúni í Reykjavík.
Bifreiðin, sem varð fyrir skemmdum, er í eigu borgarstjóra og fjölskyldu hans.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Umræða