Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið færður í einangrun á Landspítala eftir að sýni úr honum reyndist jákvætt fyrir nýrri kórónaveiru (COVID-19). Maðurinn er ekki alvarlega veikur en sýnir dæmigerð einkenni COVID-19 sjúkdóms (hósti, hiti og beinverkir). Fjallað var fyst um málið á vef RÚV og samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar var maðurinn í hópi með átta öðrum Íslendingum, þar af eru sex sem búsettir eru hér á landi. Einhverjir úr þeim hópi sem eru hér á landi eru komnir í heimasóttkví.
„Í ljósi þessa mun ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni virkja hættustig almannavarna. Er þetta gert bæði vegna þess að ekkert lát er á hópsýkingu af völdum veirunnar ytra, þá sérstaklega í Evrópu, og að fyrsta tilfellið hefur nú verið staðfest hér á landi,“ segir í tilkynningu frá Landlæknisembættiinu.
Sýnataka og greining á veiru- og sýklafræðideild Landspítali staðfesti laust eftir kl. 13:00 í dag að maðurinn væri smitaður af COVID-19 kórónaveiru og er þetta fyrsta staðfesta tilfellið hér á landi.
Maðurinn var staddur á Norður-Ítalíu utan skilgreinds hættusvæðis fyrir veirurna. „Unnið er að rakningu smitleiða en markmið þeirra vinnu er að varpa ljósi hverjir gætu verið útsettir vegna þessa staðfesta smits.“
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og sóttvarnalæknir boða til blaðamannafundar í dag í samhæfingarmiðstöð almannavarna að Skógarhlíð 14, klukkan 16:00. Fundurinn verður sýndur beint á ruv.is, útvarpað verður frá honum á Rás 2 og hann sýndur á RÚV 2. Fyrir þá sem vilja fylgjast með beinni útsendingu.