• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 16. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu í Öxarfirði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. mars 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu í Öxarfirði.
Laugardaginn 23. mars s.l. hófst öflug skjálftahrina í Öxarfirði um 6 km suðvestur af Kópaskeri.
Frá því að hrinan hófst hafa mælst 8 skjálftar af stærð 3 og yfir. Stærsti skjálfti hrinunnar mældist í gærkvöldi 27. mars, af stærð 4,2 kl. 20:29. Fjöldi skjálfta í hrinunni frá sjálfvirkum mælingum er a.m.k. 1800 skjálftar frá því hún hófst. Nú í morgun, 28. mars kl. 05:48 mældist skjálfti 3,8 að stærð, annar skjálfti var í dag kl. 12:37 af stærð 3,0. Ekki hefur dregið úr skjálftavirkninni það sem af er liðið degi.
Fjöldi misgengja er á þessu svæði og ómögulegt er að segja hvaða áhrif þessi jarðskjálftahrina muni hafa. Hrinan er öflugri og er nær byggð en nýlegar hrinur. Þekkt er að svona hrinum geti fylgt stærri jarðskjálftar sem hafa áhrif í byggð. Jarðskjálftahrinum lýkur þó í flestum tilfellum án stærri atburða.
Veðurstofunni hafa borist tilkynningar frá íbúum á Kópaskeri og í Kelduhverfi sem hafa fundið stærstu skjálftana. Það er því ástæða til þess að íbúar hugi að innastokksmun og geri aðrar viðeigandi ráðstafanir.
Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað.  Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila og almennings.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hvetja fólk sem býr á þekktum jarðskjálftasvæðum til þess að huga að öryggi á heimilum sínum og vinnustöðum.  Á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra (www.almannavarnir.is) má nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr tjóni og/eða slysum í jarðskjálfta.  Sjá hér https://www.almannavarnir.is/natturuva/jardskjalftar/varnir-gegn-jardskjalfta/
Á vef Veðurstofunnar er hægt að senda inn tilkynningar hafi fólk fundið fyrir jarðskjálfta og sjá yfirlit yfir alla jarðskjálfta á Íslandi síðustu 48 klst. www.vedur.is

Laugardaginn 23. mars hófst öflug skjálftahrina í Öxarfirði um 6 km suðvestur af Kópaskeri.

Laugardaginn 23. mars hófst öflug skjálftahrina í Öxarfirði um 6 km suðvestur af Kópaskeri.

Öflug jarðskjálftahrina í Öxarfirði

Nær byggð en nýlegar hrinur

Laugardaginn 23. mars hófst öflug skjálftahrina í Öxarfirði um 6 km suðvestur af Kópaskeri. Frá því að hrinan hófst hafa mælst 8 skjálftar af stærð 3 og yfir. Stærsti skjálfti hrinunnar mældist í gærkvöldi 27. mars, af stærð 4,2 kl. 20:29. Fjöldi skjálfta í hrinunni frá sjálfvirkum mælingum er a.m.k. 1800 frá því að hún hófst. Í morgun, 28. mars kl. 05:48 mældist skjálfti 3,8 að stærð, annar skjálfti var í dag kl. 12:37 af stærð 3,0. Ekki hefur dregið úr skjálftavirkninni það sem af er liðið degi.

Hrinan er öflugri og nær byggð en nýlegar hrinur

Fjöldi misgengja er á þessu svæði og ómögulegt er að segja hvaða áhrif þessi jarðskjálftahrina muni hafa. Hrinan er öflugri og nær byggð en nýlegar hrinur. Þekkt er að svona hrinum geti fylgt stærri jarðskjálftar sem hafa áhrif í byggð. Jarðskjálftahrinum lýkur þó í flestum tilfellum án stærri atburða.

Ástæða til þess að íbúar í nærliggjandi byggðum geri viðeigandi ráðstafanir

Veðurstofunni hafa borist tilkynningar frá íbúum á Kópaskeri og í Kelduhverfi sem hafa fundið stærstu skjálftana. Það er því ástæða til þess að íbúar hugi að innastokksmunum og geri aðrar viðeigandi ráðstafanir. Nálgast má ýmsar upplýsingar og varnir gegn jarðskjálftum á vef Almannavarna, www.almannavarnir.is

Fylgjast má með mældum skjálftum síðustu 48klst á vefnum okkar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    Nýtt flugfélag í Keflavík

    68 deilingar
    Share 27 Tweet 17
  • ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Eftirlýst kona handtekin

    97 deilingar
    Share 39 Tweet 24
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?