• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 13. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ríkisstjórnin úthlutar fjórum milljörðum króna til brýnna vegaframkvæmda

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. apríl 2018
in Óflokkað
A A
0

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gærmorgun tillögu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra um að veita fjögurra milljarða króna framlag til brýnna vegaframkvæmda árið 2018 úr almennum varasjóði sem fjármála- og efnahagsráðherra fer með. Sú staða sem nú er uppi varðandi slæmt ástand vegakerfisins og viðbótarviðhaldsþörf hefur jafnframt áður verið rædd í ráðherranefnd um ríkisfjármál.

Afar brýnt er að verja þau verðmæti sem liggja í vegakerfinu en vandinn mun vaxa ef ekki verður brugðist við í tæka tíð. Lélegt viðhald dregur einnig mjög úr umferðaröryggi. Þörfin er um allt land og verður nú mætt að nokkru leyti með viðbótarframlagi úr ríkissjóði. „Þetta mun gera okkur kleift að ljúka strax á þessu ári mikilvægum vegabótum, sem ella hefðu þurft að bíða fram á næsta ár,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.
Vegagerðin hefur metið brýnustu verkefnin sem hægt er að ráðast í með það að markmiði að verja fjárfestingu vegakerfisins og öryggi vegfarenda. Þessa dagana vinnur hún að því að leggja mat á og forgangsraða nauðsynlegum viðhaldsframkvæmdum og ráðstafa því fjármagni sem til reiðu er. Samhliða þeim auknu fjármunum sem nú verður veitt til vegaframkvæmda er gert ráð fyrir breyttri forgangsröðun verkefna á yfirstandandi ári og til framtíðar litið, í samráði við fjárlaganefnd og umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, þannig að mynda megi aukið svigrúm fyrir brýnt viðhald vega.
Á fjárlögum eru að auki ætlaðir 8 milljarðar kr. til viðhalds í ár, þar af er áætlað að verja 3,7 milljörðum króna til að endurnýja slitlög og 1,6 milljarði króna í styrkingarframkvæmdir.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Mokveiði en strandveiðibátar mega ekki veiða

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • 55,651,000 kr. greitt af 50% láni á Íslandi en 15,838,435 kr. af 100% láni í Færeyjum

    91 deilingar
    Share 36 Tweet 23
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?