Tilkynnt hefur verið að Ísland hefur gerst aðili að yfirlýsingu um framtíð internetsins sem er pólitísk skuldbinding samstarfsaðila um að efla og viðhalda interneti sem er opið, frjálst, alþjóðlegt og öruggt. Markmiðið er að internetið styrki þannig lýðræðislegar meginreglur, mannréttindi og grundvallarfrelsi.
Meðal þeirra ríkja sem hafa skrifað undir yfirlýsinguna eru öll ríki innan Evrópusambandsins, Bandaríkin, Kanada og Japan og hafa þau skuldbundið sig til að halda uppi ýmsum lykilreglum, sem tengjast meðal annars mannréttindum, baráttu gegn netglæpum og óheftum aðgangi að internetinu fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Yfirlýsing um framtíð internetsins
Þessi frétt var skrifuð af Söru Jóhönnu Geirsdóttur Waage nemanda í 10. bekk Hvolsskóla sem kom í starfskynningu í Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið.
Umræða