Helstu atriði úr dagbók lögreglu frá 17-05. Þegar þetta var ritað gistu 10 aðilar í fangageymslu lögreglu. Alls eru 76 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili. Listinn er ekki tæmandi.
Lögreglustöð 1
- Tilkynnt um slagsmál á milli tveggja aðila, lögregla fór á vettvang og ræddi við aðilana.
- Einn handtekinn vegna gruns um ólöglega dvöl í landinu, hann er einnig grunaður að starfa hér án leyfis. Hann vistaður í klefa í þágu rannsóknar.
- Tilkynnt um einn ofurölvi sem lá í gangstéttinni, honum ekið heim til sín.
- Tilkynnt um aðila í annarlegu ástandi, hann fannst ekki.
- Tilkynnt um aðila sem braust inn í fyrirtæki í miðbænum, hann yfirgaf vettvang þegar hann áttaði sig á því að það var fólk þar innandyra. Hann fannst stuttu síðar þar sem hann var að reyna að brjótast inn í bifreið, hann var þá handtekinn. Hann fluttur á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í klefa í þágu rannsóknar.
- Tilkynnt um eld í íbúð, lögregla fór á vettvang ásamt slökkviliði. Eldur kveiknaði vegna eldhúsrúlluhaldara sem stóð á eldavélinni, minniháttar.
- Lögregla veitti ökumanni eftirför en ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og ók á miklum hraða meðal annars á móti umferð. Hann handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis, hann vistaður í klefa vegna málsins.
- Fjórir aðilar handteknir grunaðir um ölvun við akstur og umferðaróhapp eftir að bifreið endaði inn í verslun. Þeir voru allir vistaðir í klefa í þágu rannsóknar en rannsókn málsins snýst meðal annars að því hver var að aka bifreiðinni þegar bifreiðin endaði inn í versluninni.
- Tilkynnt um umferðaróhapp þar sem ökumaður á rafmagnshlaupahjóli féll af hjólinu. Lögregla fór á vettvang ásamt sjúkraliði.
Lögreglustöð 2
- Tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir, fannst ekki.
- Tilkynnt um aðila sem sat ölvaður undir stýri, lögregla fór og ræddi við aðilann sem blés undir mörkum. Honum tjáð að hann mætti ekki aka bifreiðinni.
- Ökumaður handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis, hann laus að lokinni sýnatöku.
- Lögregla sinnti nokkrum hávaðakvörtunum.
Lögreglustöð 3
- Ökumaður stöðvaður vegna gruns um of hraðan akstur, hann mældist á 102 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Hann sviptur ökuréttindum vegna þessa.
- Aðili kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt fyrir að kasta af sér vatni fyrir utan íþróttaheimili.
- Tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir, hann fannst ekki.
Lögreglustöð 4
- Tilkynnt um þjófnað úr verslun, málið afgreitt með vettvangsskýrslu.
- Ökumaður sektaður fyrir að aka sviptur ökuréttindum.
- Ökumaður handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis.
Umræða