Í liðinni viku voru 11 ökumenn kærðir fyrir að aka yfir leyfilegum hámarkshraða. Þessi hraðakstursbrot áttu sér stað vítt og breitt um Vestfirði. Sá sem hraðast ók, á vegakafla þar sem hámarkshraði er 90 km var mældur á 118 km hraða. Sá sem hraðast ók á 60 km kafla var mældur á 81 km hraða og sá sem hraðast ók á 30 km kafla var mældur á 54 km hraða.
Það er í þágu umferðaröryggis sem lögreglan er að hraðamæla og hafa afskipti af ökumönnum. það ættu allir ökumenn að vita að eftir því sem hraðinn er meiri verða afleiðingar óhappa alvarlegri.
Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um að vera undir áhrifum áfengis. Það atvik gerðist í nótt sem leið, á Skutulsfjarðarbraut. Þá reynist ökumaðurinn með útrunnin ökuréttindi.
Ekið var á nokkur lömb á vegum í umdæminu. Ökumenn eru hvattir til að gæta vel að þessu og einnig eru eigendur búfjár hvattir til að reyna allt sem hægt er til að fyrirbyggja að lausaganga eigi sér stað á eða við vegi.
Tilkynnt var um húsbrot í skemmu við eyðibýli í Ísafjarðarbæ, en þar höfðu aðilar farið inn í skemmu þar sem verðmæti voru. Þeir höfðu aftengt öryggismyndavélar en lögreglan fór á vettvang og færði þá í fangahús á Ísafirði. Málið er til rannsóknar.
Tilkynnt var um tvö umferðaróhöpp í vikunni og einnig var tilkynnt um eld í vörubifreið. Engin slys urðu á fólki.
Þá varð eldur laus í fiskibát sem lá mannlaus við bryggju í Bolungarvíkurhöfn. Eldurinn barst í annan bát sem lá utan á þeim fyrri. Mikill eldur braust út og vann slökkvilið Bolungarvíkur og Ísafjarðarbæjar við slökkvistarf langt fram á dag. Þá komu björgunarsveitir í Bolungarvík og Ísafirði að verkefninu. Verkefnið var yfirgripsmikið og stóðu allir viðbragðsaðilar sig mjög vel.
Bátarnir tveir eru mjög mikið skemmdir ef ekki ónýtir.
Rannsókn lögreglunnar á Vestfjörðum á eldsupptökum stendur yfir og ótímabært að veita frekari upplýsingar um þann þátt.
Umræða