• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ráðherra skipar son ráðherra yfir sex milljarða sjóði

Ráðherra skipar son ráðherra yfir sex milljarða sjóði

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. ágúst 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Logi Einarsson menningarmálaráðherra hefur skipað Jónas Má Torfason formann nefndar um endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Jónas er sonur Ölmu Möller heilbrigðisráðherra.

Ríkisútvarpið birti fyrst frétt af málinu og þar segir: ,, Jónas Már Torfason hefur verið skipaður formaður nefndar um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Hann er skipaður af Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Jónas Már er sonur Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra og samflokkskonu menningarmálaráðherra í Samfylkingunni.

Jónas Már Torfason.
Jónas Már er lögfræðingur og hefur verið virkur í starfi Samfylkingarinnar frá 2014

Jónas Már er lögfræðingur og hefur verið virkur í starfi Samfylkingarinnar frá 2014. Hann er formaður Félags frjálslyndra jafnaðaramanna, og hefur setið í flokksstjórn og framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar.

Samkvæmt lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi tilnefna ráðherra sem fer með kvikmyndir og ráðherra sem fer með fjárreiður ríkisins og fjármál sinn fulltrúa hvor, en sá þriðji skal skipaður án tilnefningar og vera formaður nefndarinnar.

Jónas Már staðfestir í samtali við fréttastofu að hann hafi fengið skipunarbréf á mánudag. Fyrsti fundur nefndarinnar undir hans stjórn var í dag.

Endurgreiðslur til sjónvarps- og kvikmyndaverkefna hafa aukist jafnt og þétt síðustu ár. Þær voru rúmur milljarður fyrir áratug síðan en í ár er áætlað að endurgreiðsla nemi sex milljörðum króna.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Þvílíkt sturluð laun hjá elítunni!

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Viðvörun – Frost um allt land og rok framundan

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Óttast eldgos á Tenerife

    161 deilingar
    Share 64 Tweet 40
  • Sturluð staðreynd

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?