• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 2. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

20 stiga frost í kvöld og nótt – ,,líklegt að frostið nái 20 stigum“

20 stiga frost í kvöld og nótt – ,,líklegt að frostið nái 20 stigum“

Norðanáttin hefur fært kalt heimskautaloft yfir landið

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. nóvember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Nú með morgninum er útlit fyrir norðanátt hjá okkur, víða á bilinu 8-15 m/s, en 13-20 (allhvass eða hvass vindur) á austanverðu landinu. Það gengur á með éljum á Norður- og Austurlandi. Léttskýjað og fallegt veður sunnan heiða. Kuldinn bítur í kinnar, frost yfirleitt á bilinu 3 til 8 stig í dag. Síðdegis dregur úr vindi og í kvöld styttir upp. Norðanáttin hefur fært kalt heimskautaloft yfir landið. Við aðstæður eins og í kvöld og nótt, í hægum vindi og léttskýjuðu veðri, getur neðsta lag lofthjúpsins kólnað enn frekar vegna útgeislunnar. Við gerum semsagt ráð fyrir að það herði enn á frostinu í kvöld og nótt og líklegt að það nái 20 stigum á nokkrum völdum mælistöðvum, einkum þar sem lægðir eru í landslagi og kalda loftið getur legið kyrrt.

Morgundagurinn heilsar væntanlega þurr og mjög kaldur. Spár gera síðan ráð fyrir að snjókomubakki komin inn á Suðausturland og Suðurland og með fylgi austlæg átt c.a. á bilinu 8-13 m/s. Dregur úr frostinu á þessum slóðum þegar bakkinn kemur á land. Spá gerð: 28.11.2025 06:45. Gildir til: 29.11.2025 00:00.

Veðurhorfur á landinu
Norðan 8-15 m/s, en 13-20 á austanverðu landinu. Él á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað sunnan heiða. Frost 3 til 8 stig. Dregur úr vindi síðdegis, syttir upp í kvöld og herðir á frosti.

Breytileg átt 3-8 á morgun, víða þurrt veður og talsvert frost. Austan 5-13 og snjókoma með köflum á Suðausturlandi og Suðurlandi eftir hádegi, hvessir um suðvestanvert landið seint annað kvöld. Spá gerð: 28.11.2025 07:42. Gildir til: 30.11.2025 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Austan 10-18 á sunnanverðu landinu, en bætir í vind víða um norðanvert landið síðdegis.
Snjókoma eða slydda með köflum, en rigning við suður- og vesturströndina. Þurrt að mestu norðan jökla. Hiti 0 til 5 stig. Hægari vindur norðvestantil, úrkomulítið og frost 0 til 5 stig.

Á mánudag (fullveldisdagurinn):
Austan 8-15, en allhvasst eða hvasst við Suðurströndina. Rigning um sunnanvert landið, en dálitlir skúrir eða él í öðrum landshlutum. Hiti 0 til 5 stig.

Á þriðjudag:
Norðaustlæg átt og dálítil él norðan- og austanlands, en yfirleitt þurrt og bjart á Vesturlandi. Frost víða 0 til 5 stig.

Á miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir norðaustlæga átt með strekkingi eða allhvössum vindi með Austurströndinni. Dálítil él eða snjókoma norðan- og austanlands, en yfirleitt þurrt og bjart suðvestantil. Frost víða 0 til 5 stig. Spá gerð: 28.11.2025 08:51. Gildir til: 05.12.2025 12:00.

 

Umræða
Share20Tweet12
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    62 deilingar
    Share 25 Tweet 16
  • Alþingismanni hótað

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Stjórnarsáttmáli sem Viðreisn og Samfylkingin meintu raunverulega ekki neitt með

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?