Helstu atriði úr dagbók LRH frá 17-05. Þegar þetta er ritað eru fjórir vistaðir í fangageymslu lögreglu. Alls eru 54 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili.
Lögreglustöð 1
Maður sem neytti fíkniefna fyrir framan lögreglu handtekinn vegna þessa.
Óvelkominn maður fjarlægður úr íbúð.
Ökumaður kærður fyrir að aka á 133 km/klst í götu. Fluttur á lögreglustöð og sviptur ökuréttum.
Maður með hníf handtekinn í búsetuúrræði fyrir hótanir.
Maður handtekinn fyrir sölu og dreifingu fíkniefna. Vistaður í fangaklefa.
Þjófnaður í matvöruverslun og neitaði þjófurinn að segja til nafns. Skýrslutaka með aðkomu forráðamanns.
Manni vísað út úr dvalarúrræði.
Tilkynnt um bifreið sem var ekið um með konu á vélarhlífinni en hún var svo handtekin í þágu rannsóknar á öðru máli.
Lögreglustöð 2
Þjófnaður í matvöruverslun.
Nokkrir ökumenn sektaðir fyrir að vanrækja merkjagjöf. Einn þeirra reyndist svo vera á ótryggðri bifreið og annar ók einnig gegn rauðu ljósi. Enn fremur var annar líka með ljósker í ólagi og var boðaður í skoðun.
Lögreglumenn veittu athygli bifreið sem önnur bifreið var að draga. Kom í ljós að stjórnendur beggja ökutækja voru undir áhrifum fíkniefna og annar þeirra einnig að varsla fíkniefni sem og próflaus. Handteknir og færðir á lögreglustöð í hefðbundið ferli.
Lögreglustöð 3
Kona kærð fyrir ofbeldi gagnvart lögreglumanni.
Ökumaður kærður fyrir að aka á gangstétt.
Lögreglustöð 4
Ölvuðum manni vísað út úr matvöruverslun.
Umferðarslys en minni háttar skemmdir og meiðsli.

