• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Byggja brú með trefjaplasti – Varanleg og hagkvæm lausn

Byggja brú með trefjaplasti – Varanleg og hagkvæm lausn

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
28. desember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Við endurnýjun brúarinnar yfir Kaldá hjá Snorrastöðum í Hnappadal var notuð ný byggingaraðferð, þar sem öll yfirbyggingin er gerð úr trefjaplasti. Gamla brúin var rifin um miðjan september og í kjölfarið hófst kapphlaup við tímann svo ný brú yrði tilbúin fyrir veturinn. Það tókst vel því nýja brúin var tekin í notkun í byrjun desember að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Kostnaðaráætlun framkvæmdarinnar eru 136,5 milljónir króna. Lokakostnaður liggur ekki fyrir en gert er ráð fyrir að hann verði innan marka kostnaðaráætlunar.

Brúin yfir Kaldá var byggð árið 1958 og hönnuð fyrir hámarksvagnþunga upp á 18 tonn. Hún var 30 m að lengd en aðeins 2,8 m á breidd, stálbitabrú með timburdekki og -handriði. Brúin stóð á fjórum stöplum, þ.e. tveimur steyptum millistöplum og tveimur endastöplum úr timburokum (símastaurum).

Hún þjónaði sem heimreið að Snorrastöðum en þar er rekið burðugt kúabú með hátæknifjósi. Á brúnni blandast umferð frá starfseminni og gangandi vegfarenda á leið inn í Eldborg, sem þúsundir ferðamanna heimsækja árlega. Kominn var tími á endurnýjun þar sem brúin var úr sér gengin og orðin hrörleg, enda barn síns tíma.

Varanleg og hagkvæm lausn

Undirbúningur framkvæmda tók rúm tvö ár. Vegagerðin setti það markmið að útfæra varanlega lausn sem uppfyllti nútímakröfur um burð og öryggi vegfaranda en tæki jafnframt stuttan tíma í uppsetningu á verkstað. Það var m.a. gert til að hvetja verktaka til að finna nýjar og hagkvæmari lausnir í brúargerð og um leið lágmarka hættuna á að samgöngur rofnuðu heim að Snorrastöðum á framkvæmdartíma. Þar sem þetta er eina leiðin að og frá bænum hefði það getað haft slæm áhrif á rekstur búsins.

Boðin var út verkhönnun, framleiðsla og uppsetning á nýrri yfirbyggingu. Hluti af skilmálum útboðsins var knappur verktími en verktakar fengu tvær vikur til að setja upp yfirbyggingu brúarinnar á verkstað.

Tvö tilboð bárust og urðu Trefjar ehf. í samstarfi við hollenska fyrirtækið Fibercore hlutskörpust. Fibercore sérhæfir sig í framleiðslu brúa úr trefjaplasti. Í framhaldinu voru undirritaðir samningar milli Vegagerðarinnar og Trefja þann 5. maí 2025. Verkhönnun lauk í byrjun ágúst en samhliða hannaði verkfræðistofan Efla nýja endastöpla undir brúna.

Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar sá um að reisa nýja steypta endastöpla. Undir þá voru reknir átta 12 m langir, steyptir staurar en stöplarnir eru um 3 metra háir með jarðvegsvængjum. Millistöplar eldri brúarinnar voru endurnýttir.

Yfirbyggingin var smíðuð og flutt í heilu lagi frá Rotterdam í Hollandi. Uppskipun fór fram í Þorlákshöfn. Þaðan var hún flutt á verkstað og hífð og fest á stöplana á einum degi, þann 19.11.2025.

Brúardekk úr trefjaplasti

Dekkið á nýju brúnni er smíðað úr trefjaplasti. Um er að ræða nýja aðferð sem í vaxandi mæli hefur verið notuð í brúargerð á meginlandi Evrópu og í Noregi. Yfirbyggingin vegur aðeins um 23 tonn þrátt fyrir að hún sé 22 m löng, 5,3 m breið og skiptist í 3 m breiða akrein og 1,5 m breiðan göngustíg fyrir gangandi vegfarendur.

Nýja brúin var tekin í notkun þann 3. desember sl. eða aðeins tæplega þremur mánuðum eftir að framkvæmdir hófust.

Ný tækifæri og áframhaldandi þróun

Vegagerðin sér ýmis tækifæri í þessari byggingaraðferð og stefnir á áframhaldandi þróun með einkaaðilum á nýjum og hagkvæmum lausnum í brúargerð á næstu árum, sérstaklega í uppfærslu og endurnýjun á eldri brúarmannvirkjum sem mörg hver eru komin á aldur og uppfylla ekki nútímakröfur.

Velverk ehf. jarðvinnuverktaki sá um jarðvinnu fyrir Vegagerðina og færslu á lögnum fyrir landeiganda, Rarik og Mílu.

Verklok voru áætluð 15. nóvember 2025 og kostnaðaráætlun framkvæmdarinnar 136,5 milljónir króna. Lokakostnaður liggur ekki fyrir en gert er ráð fyrir að hann verði innan marka kostnaðaráætlunar.

Umræða
Share4Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Alþingismanni hótað

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Hlaut stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?