Helstu atriði úr dagbók lögreglu frá 17-05. Þrír voru vistaðir í fangageymslu lögreglu fyrir hádegi.
Lögreglustöð 1.
Tilkynnt um brjálaðan aðila á almannafæri í hverfi 101. Reyndist eftirlýstur.
Framleiðsla fíkniefna upprætt í hverfi 104.
5 ökumenn handteknir fyrir ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur víðsvegar um varðsvæðið.
Aðili handtekinn í hverfi 101 fyrir að pissa á almannafæri og segja ekki til nafns.
Lögreglustöð 2.
Ölvuðum aðila í hverfi 220 ekið til síns heima.
Tilkynnt um þakplötur að fjúka í hverfi 220.
Ökumaður handtekinn fyrir fíkniefnaakstur í hverfi 221.
Lögreglustöð 3.
Skráningarmerki fjarlægð af bifreiðum í hverfum 201 og 111 vegna aðal- og endurskoðunar.
Minni háttar umferðaróhapp í hverfi 201.
Lögreglustöð 4.
Ökumaður handtekinn fyrir ölvunarakstur í hverfi 110.
Umferðarslys í hverfi 108 hvar einn var fluttur á slysadeild og tvær bifreiðar dregnar af vettvangi. Annar ökumaðurinn handtekinn fyrir ölvunarakstur.

