Vegagerðin hefur boðið út verkhönnun á undirbúningsframkvæmdum fyrir Sæbrautarstokk. Um er að ræða gerð verkhönnunargagna, meðal annars fyrir rif, aðstöðusköpun og hjáleiðir fyrir Sæbraut.
Frestur til að skila inn tilboðum er til kl. 14:00 þriðjudaginn 14. apríl 2026. Verki skal að fullu lokið 30. nóvember 2026.
Um Sæbrautarstokk:
Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um 1 km löngum kafla sem nær frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs.
Ný gatnamót við Kleppsmýrarveg/Skeiðarvog verða byggð ofan á norðurhluta stokksins með römpum að og frá Sæbraut til norðurs og suðurs. Í Sæbrautarstokk verða tvær akreinar í hvora átt auk blöndunarreina, að- og fráreina og neyðarvasa. Stoðveggir verða við enda stokksins og við rampana.
Eitt af markmiðunum er að bæta umhverfið í aðliggjandi byggð og tengja betur saman hverfi sem nú eru aðskilin af mikilli umferð.


Hvaða áhrif hefur Sæbrautarstokkur á höfuðborgarsvæðið?
- Greiðari samgöngur fyrir akandi og aukið umferðaröryggi með frjálsu flæði yfir langan kafla Reykjanesbrautar (Sæbrautar) með afnámi gatnamóta við Súðarvog og mislægum gatnamótum við Kleppsmýrarveg.
- Greiðari samgöngur fyrir gangandi og hjólandi og aukið umferðaröryggi með tengingum ofan á stokki milli borgarhluta austan og vestan megin við Sæbraut.
- Greiðar samgöngur fyrir Borgarlínu og Strætó með mislægri þverun við Sæbraut á sérakreinum.
- Hljóðvist og loftgæði eru bætt á löngum kafla.
- Bættar tengingar almenningssamgangna sem og fyrir gangandi og hjólandi stuðla að auknu hlutfalli ferða vistvænna samgöngumáta sem er þáttur í að mæta loftlagsmarkmiðum stjórnvalda.
- Meira pláss til uppbyggingar og borgarþróunar fjölgar jafnframt mögulegum notendum vistvænna samgangna.
- Ofan á stokknum er gert ráð fyrir nýjum borgargarði með gróðri, göngu- og hjólastígum og góðri aðstöðu til útivistar og samveru.
Sæbrautarstokkur er ein af þeim stofnvegaframkvæmdum sem heyra undir Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Gláma-Kím teiknaði meðfylgjandi myndir.


