Eldri kona sem seldi heimabakað brauð og snúða á Facebook hefur verið dæmd í sex vikna fangelsi. Lögmaður hennar varar við því að konan muni ekki geta afplánað þennan þunga dóm sökum aldurs og heilsufars.
Konan hefur rekið starfsemina í Svíþjóð og án þess að skrá eldhúsið eða fá tilskilin leyfi frá embættismönnum, að því er P4 Norrbotten greinir frá.

Snúðasalan hefur verið í gangi í nokkur ár og hefur náð til margra viðskiptavina á samfélagsmiðlum þar sem konan birti myndir af bakstri sínum ásamt barnabörnum.
Þrátt fyrir þrýsting og sektir frá sveitarfélaginu hefur hún haldið bakstrinum áfram og sölunni.
Áfrýjunardómstóll í Efra-Norðurlandi hefur núna úrskurðað að brotið sé nægjanlega alvarlegt til að réttlæta fangelsisdóm.
Verjandi konunnar, Frida Larsson, lýsir yfir áhyggjum af dómnum í viðtali við P4 Norrbotten:
„Hún er ósammála niðurstöðu dómstólsins um að það sem hún gerði réttlæti fangelsisdóm. Hún sér heldur ekki fram á það, hvernig hún eigi að geta afplánað fangelsisdóm.“