• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

FRÍSK fær lögbann á ólöglega streymiþjónustu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. maí 2018
in Óflokkað
A A
0

FRÍSK fær lögbann á ólöglega streymiþjónustu

 

FRÍSK, Félag rétthafa í sjónvarpi og kvikmyndiðnaði, í umboði Sýnar hf. hefur fengið lagt á lögbann gagnvart forsvarsmanni IPTV Iceland, sem bæði veitir eða selur aðgang að sjónvarpsútsendingum, þ.m.t. hljóð- og myndefni, sem og dagskrá þar sem sýnt er m.a. frá knattspyrnuleikjum í ensku úrvalsdeildinni sem Sýn á einkaréttinn á til sýningar á Íslandi.
IPTV Iceland selur viðskiptavinum sínum aðgang að svokölluðu „netsjónvarpi“ sem inniheldur aðgang að útsendingum hundruða sjónvarpsstöðva, auk aðgangs að kvikmyndum sem horfa má á samkvæmt pöntun. Á öllum þeim sjónvarpsrásum er sýnt sjónvarpsefni sem verndað er af höfundarétti og reglum höfundalaga. IPTV Iceland hefur ekki aflað sér heimildar frá rétthöfum til sýningar á dagskrá sjónvarpsstöðvanna, hvorki frá sjónvarpsstöðvunum sjálfum, né frá rétthöfum og eigendum höfundarréttinda að einstökum dagskrárliðum. Þær sjónvarpsstöðvar hafa þar að auki hvorki vilja né heimildir frá rétthöfum þess myndefnis sem þar er sýnt, til að sýna umrætt efni hér á landi.
Image result for frisk íslandi
Háttsemin brýtur gegn fjölmörgum ákvæðum höfundalaga, auk annarra laga. Þess var krafist að fyrirsvarsmaður IPTV Iceland yrði í öllum skilningi gert að hætta að dreifa og gera aðgengilegt höfundarvarið sjónvarpsefni, þ.m.t. útsendingar og dagskrárgerð sem tengist ensku úrvalsdeildinni. Sýslumaður tók undir þær kröfur og lagði lögbann við starfseminni.
„Við erum að sjá aukið framboð á svokölluðu netsjónvarpi þar sem íslenskir aðilar bjóða erlendar sjónvarpsstöðvar, myndefni eftir pöntun og íþróttaviðburði.  Við höfum sett okkur í samband við flesta þessa aðila og hafði eigandi IPTV Iceland ekki orðið við beiðni rétthafa um að hætta starfsemi sinni og loka fyrir aðgang viðskiptamanna sinna að því hljóð- og myndefni sem hann miðlar til þeirra. Hafði FRÍSK með umboði Sýnar hf. því aðeins þann kost að grípa til lögbannsaðgerða til að vernda hagsmuni félagsmanna sinna.“ segir Hallgrímur Kristinsson, formaður FRÍSK.  „Það má því búast við fleiri svona aðgerðum á næstunni ef aðrir láta ekki af sömu iðju“ segir Hallgrímur að lokum.
Íslenskir rétthafar tapa um 1.1 milljarði á ársgrundvelli vegna ólöglegs streymis og niðurhals.  Greinin skapar þúsundir starfa og samanlagt renna um 12 milljarðar króna til hins opinbera vegna iðnaðarins.
Verður nú leitað staðfestingar á lögbanninu fyrir dómstólum, auk þess sem krafist verður viðurkenningar á skaðabótaábyrgð viðkomandi aðila. Þá verður háttsemi fyrirsvarsmanns einnig kærð til lögreglu von bráðar.
 
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    33 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?