Vinur minn lenti í lögregluaðgerð í vikunni, þar sem ungir lögreglumenn spörkuðu upp hurð á heimili hans án nokkurs fyrirvara né ástæðu. Lifum við í lögregluríki þar sem borgararnir eru óvarðir gegn árásum og innbrotum yfirvalda?
,,Þeir bönkuðu á dyrnar og þegar ég ætlaði að fara að opna, þá er hurðinni bara sparkað upp og hún brotin af ungum lögreglumönnum. Það liðu varla meira en fimm sekúndur frá því var bankað, þar til lögreglan braust inn í húsið, þannig að enginn tími var til þess að opna hurðina.
Þetta voru allt ungir guttar í lögreglunni, hugsanlega í sumarvinnu og enginn kominn yfir þrítugt. Þetta er líklega bíómyndakynslóðin í lögguleik og veruleikafirrt. Því svona framkoma er þekkt í amerískum bíómyndum, en þá er reyndar yfirleitt eitthvert alvöru tilefni til húsbrots en svo var ekki í þessu tilfelli.
Mér var sagt að einhver hefði kvartað yfir hávaða frá íbúðinni, en það var ekki alvarlegra en það að við konan vorum að ræða málin á háu nótunum, annað var það ekki. Það er undarlegt að lögreglusveit birtist inni í íbúð fólks ef það hefur samskipti í ákveðinni tónhæð. Hvert erum við komin þegar svo er? Er þetta þróun sem við vijum? Hefur lögreglan heimild til að brjótast inn á heimili án alvöru ástæðu eða úrskurðar?
Lögreglumennirnir montuðu sig af því við konuna og voru mjög hreyknir af því að upplýsa hana um að þeir væru að brjóta að minnsta kosti fimm hurðir á dag hjá fólki, þeir voru hlægjandi. En henni var ekki skemmt þar sem við sitjum uppi með ónýta hurð og ólæsta íbúð og tjón upp á annað hundrað þúsund krónur.“ Sagði þolandinn í málinu og ég velti því fyrir mér hvort þetta séu sömu lögreglumenn og réðust á mótmælendur ríkisstjórnarinnar með piparúða og ofbeldi?
Eru þetta sömu menn og eiga að fá rafbyssur til að nota á okkur borgarana og börnin okkar? Búum við í lögregluríki? Ég man þá tíð þegar lögreglumenn voru lögregluþjónar.