• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 13. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Læknir skrifar: ,,Á rúmum þrjátíu árum hefur heilbrigðiskerfið aldrei verið betra en í tíð núverandi ráðherra“

Hefur starfað í heilbrigðisþjónustu síðan 1988

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. ágúst 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Heil­brigðis­þjónustu skal byggja á jöfnuði, rétt­læti og góðu að­gengi

Jöfnuður, réttlæti og gott aðgengi að öruggri gæðaþjónustu er andi laga um heilbrigðisþjónustu og laga um réttindi sjúklinga. Vorið 2019 samþykkti Alþingi Heilbrigðisstefnu til 2030 undir dyggri stjórn Svandísar Svavarsdóttur. Heilbrigðisstefnan undirstrikar framangreint og bætir um betur. Í henni er mikil áhersla á að veita rétta þjónustu á réttum stað, að hafa fólkið í forgrunni og á virka notendur. Stefnan er studd aðgerðaáætlun til fimm ára í senn. Ábyrgð ráðherra á stefnunni er óumdeild þó margir aðrir þurfi að leggja hönd á plóg. Forsenda árangurs er að ráðherran sé stefnunni trúr og það er Svandís Svavarsdóttir. Það skiptir máli hver stjórnar!

Skýr stefnumörkun

Undirritaður hefur starfað í heilbrigðisþjónustu á Austurlandi síðan 1988. Allan tímann hefur verið kallað eftir skýrari stefnumörkun um hvaða hlutverki ólíkir þættir heilbrigðiskerfisins eigi að sinna; hver á að gera hvað og hvar? Á þessum rúmu þrjátíu árum hefur aldrei náðst svo skýr sýn og stefnumörkun eins og í tíð núverandi ráðherra. Uppskriftin er einföld, samanstendur af fjórum aðalatriðum, nefnilega að;

  1. Muna fyrir hvern heilbrigðisþjónustan er
  2. Byggja á lögum um þjónustuna
  3. Móta þá stefnu sem svo lengi hefur verið kallað eftir
  4. Framfylgja stefnunni.

Fyrstu þrjú atriðin eru klár og vinna við það fjórða hafin og brýnt að Svandís Svavarsdóttir fái umboð til að verkstýra henni næsta kjörtímabil. Ella munu háværir hagsmunahópar og bakraddir pólitískra íhaldsafla stöðva vegferðina sem hafin er um þann hluta uppskriftarinnar.

Þjónusta fyrir fólk

Hér verður tæpt á aðalatriðum. Fyrst, að þetta fjallar allt um fólk; þjónustan er til fyrir fólk og veitt af fólki með ólíkan bakgrunn sem saman myndar þjónustukeðjuna, hið þverfaglega teymi. Næst að heilsugæslustöðvar hafa lengi verið burðarás heilbrigðisþjónustu úti á landi og er ætlað það hlutverk áfram. Loks að úr NA-kjördæmi og víðar er langt í hátækniþjónustu Landspítalans.

Heilsugæslan; markvisst þarf að stuðla að áhuga heilbrigðisfagfólks á störfum úti á landi. Ástunda samráð við háskóla um „mikilvægi þess að menntun heilbrigðisstétta taki mið af íslenskum aðstæðum“ eins og segir í Heilbrigðisstefnunni. Horfa ber til þess um kjör og aðstæður fagfólks heilsugæslu í dreifbýli að það veitir alla fyrstu þjónustu sem á höfuðborgarsvæðinu dreifist á heilsugæsluna, stofur sérgreinalækna, bráðamóttöku og göngudeildir Landspítala. Skilgreina þarf hvað umfram hefðbundna heilsugæsluþjónustu skal vera nærþjónusta, aðgengileg í heilbrigðisumdæmum. Hér vísa ég til þess að íbúar dreifbýlis nýta þjónustu sérgreinalækna mun minna en íbúar höfuðborgarsvæðis, hvar nær öll þjónustan er.

Sjúkrahúsþjónusta NA-kjördæmi; Styrkja Umdæmissjúkrahús Austurlands með áherslu á nærsamfélagslega grundvallar þjónustu s.s. fæðingar, þjónustu við aldraða og endurhæfingu og huga þar m.a. að mögulegri aðkomu Landspítala. Styrkja sjúkrahúsið á Akureyri með þarfir íbúa á Norður og Austurlandi í huga, hlutverks þess í sjúkraflugi og almannavörnum landsins alls og efla það sem kennslustofnun. Bæta almenningssamgöngur milli Norður og Austurlands til að auka aðgengi íbúa Austurlands að þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri. Við stækkun björgunarþyrluflota landsins að staðsetja þyrlu á Egilsstöðum eða Akureyri. Efling sjúkraflutninga og nýting fjarþjónustu eru áhersluatriði í heilbrigðisstefnunni sem fylgja þarf eftir. Vegna farsóttar og margs annars þarf forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra sem treysta á vísindamenn og taka mið af samfélagslegum sjónarmiðum, vitandi að góð heilsa er gulli betri.

Munum að þetta fjallar allt um fólk og öllu skiptir hverjir stjórna!

Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur skýra stefnu og markmið varðandi heilbrigðismál og -þjónustu. Nú á VG tvo þingmenn í NA-kjördæmi og þá stöðu, að lágmarki, er brýnt að tryggja. Oddvitanum Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur og Jódísi Skúladóttur í 2. sæti VG-lista í NA, treysti ég til að fylgja þessum áherslum eftir í okkar kjördæmi. Tryggjum þeim þingsæti 25. september nk.

Höfundur er heimilislæknir og fulltrúi VG í umhverfis- og framkvæmdaráði Múlaþings.

Umræða
Share30Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Kanada lifir sníkjulífi á Ameríku & Carney wefur örlög þjóðarinnar …

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • 48 dagar verði felldir niður – 20% hærra verð fyrir krókafisk

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Verr farið með Ísland en Namibíu – Kvótakerfið til Mannréttindadómstólsins

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?