Hugleiðingar veðurfræðings
Nú í morgunsárið er vindur víðast hvar hægur á landinu, bjart með köflum og hörkufrost, en það fór yfir 20 stig á nokkrum veðurstöðvum í nótt. Þó blæs nokkuð við suðausturströndina og þar eru einhverjir úrkomubakkar á sveimi.
Í dag nálgast lægð sunnan úr höfum, allra kaldasta loftið hörfar undan og það dregur úr frosti. Seinnipartinn verða skil frá lægðinni skammt fyrir sunnan land, þá bætir smám saman í vind og það þykknar upp, víða snjókoma í kvöld, en líklega úrkomulítið á Norðvestur- og Vesturlandi.
Veðurhorfur á landinu
Norðaustan og austan 3-10 m/s og bjart með köflum, en 10-18 og dálítil él við suðausturströndina. Frost 5 til 20 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan.
Dregur úr frosti í dag. Bætir smám saman í vind síðdegis og þykknar upp, víða snjókoma í kvöld, en úrkomulítið á Norðvestur- og Vesturlandi.
Gengur í norðaustan 13-20 á morgun, hvassast suðaustantil. Snjókoma á austurhelmingi landsins, og él um landið norðvestanvert, en yfirleitt þurrt suðvestanlands. Frost 0 til 7 stig. Dregur úr ofankomu annað kvöld.
Spá gerð: 29.11.2024 04:25. Gildir til: 30.11.2024 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Norðaustan 13-20 m/s, hvassast suðaustantil. Snjókoma á austurhelmingi landsins, og él um landið norðvestanvert, en yfirleitt þurrt suðvestanlands. Frost 0 til 7 stig. Dregur úr ofankomu undir kvöld.
Á sunnudag (fullveldisdagurinn):
Minnkandi norðanátt, 3-10 m/s seinnipartinn en 10-15 á Suðaustur- og Austurlandi. Víða él, en bjart að mestu sunnan heiða. Herðir á frosti, 5 til 17 stig undir kvöld, kaldast inn til landsins.
Á mánudag:
Vaxandi suðaustanátt og stöku él, 10-18 sunnan- og vestantil síðdegis og hlýnar með slyddu eða snjókomu. Hægari vindur á Norðaustur- og Austurlandi og lengst af þurrt og kalt, en dregur úr frosti um kvöldið.
Á þriðjudag:
Suðlæg átt 8-15 og rigning, slydda eða snjókoma með köflum, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti um eða yfir frostmarki.
Á miðvikudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt og stöku skúrir eða él. Heldur kólnandi. Vaxandi austanátt og fer að rigna suðaustantil um kvöldið.
Á fimmtudag:
Norðlæg átt og slydda eða snjókoma, en úrkomuminna sunnan heiða.
Spá gerð: 28.11.2024 20:42. Gildir til: 05.12.2024 12:00.
Gengur í norðaustan 13-20 m/s á morgun, hvassast suðaustantil. Á austurhelmingi landsins má búast við snjókomu og skafrenningi og þar eru líkur á að færð spillist, einkum á Suðausturlandi og Austfjörðum. Á norðvestanverðu landinu verður úrkoman éljakenndari, og suðvestanlands ætti að hanga þurrt. Frost 0 til 7 stig. Annað kvöld fer að draga úr ofankomu.
Á sunnudag er svo útlit fyrir minnkandi norðanátt og él, en yfirleitt þurrt og bjart veður sunnan heiða. Herðir á frosti.
Spá gerð: 29.11.2024 06:14. Gildir til: 30.11.2024 00:00.