Hér eru helstu atriði úr dagbók LRH frá kl.17-05. Þegar þetta er ritað eru tveir vistaðir í fangageymslu lögreglu. Alls eru 28 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili. Ásamt neðangreindu sinnti lögregla almennu eftirliti og ýmsum aðstoðarbeiðnum. Listinn er því ekki tæmandi.
Lögreglustöð 1
- Óskað aðstoðar lögreglu vegna ráns. Þrír karlmenn eru grunaðir um að hafa veist að einum með höggum og spörkum og stolið af honum farsíma. Brotaþoli var fluttur á bráðamóttöku til frekari skoðunar með sjúkrabifreið en áverkar sagðir minniháttar. Lögregla telur sig vita hverjir árásaraðilarnir eru og er málið í rannsókn.
- Tilkynnt um ungmenni að kasta flugeldum í átt að bifreiðum. Lögregla fór á staðinn og ræddi við ungmennin.
- Önnur tilkynning þar sem aðilar voru sagðir standa á brú yfir umferðaþunga stofnbraut og kasta flugeldum niður á götuna.
- Lögregla sinnti tilkynningum er vörðuðu samkvæmishávaða.
- Tilkynnt um innbrot í verslun þar sem munum var stolið. Einn handtekinn og vistaður í fangaklefa vegna málsins. Málið í rannsókn.
- Einn handtekinn grunaður um að aka rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis á kyrrstæða bifreið. Umferðaróhappið átti sér stað í viðurvist lögreglumanna sem veittu manninum athygli í eftirlitsferð sinni og horfðu á er hann olli umferðaróhappinu. Hann laus að lokinni sýnartöku.
Lögreglustöð 2
- Ökutæki stöðvað við almennt umferðareftirlit. Ökumaður er grunaður um að aka undir áhrifum áfengis, þó undir refsimörkum, sem og að aka sviptur ökuréttindum. Hann laus að lokinni skýrslutöku.
Umræða

