Viðbragðsaðilar eru nú á leið á vettvang þar sem umferðaróhapp varð rétt áðan, við brúna yfir Tungufljót, skammt norðan við Geysi.
Þar rákust saman fólksbíll og rúta með samtals 7 aðilum í. Ekki munu hafa orðið slys á fólki en við áreksturinn sprungu líknarbelgir þannig að brugðist er við í samræmi við að mögulegt sé að einhverjir áverkar séu.
Vegurinn mun vera lokaður en hjáleið er um Brúarlöð eftir Skeiðavegi.
Umræða