Sautján ára piltur, sem réðst með hnífi að þremur ungmennum á Menningarnótt í fyrra, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur til átta ára fangelsisvistar fyrir manndráp og tvær tilraunir til manndráps. Sautján ára stúlka, Bryndís Klara Birgisdóttir, lést af sárum sínum viku eftir árásina.
Samkvæmt frétt ríkisútvarpsins, kemur fram að Héraðssaksóknari hafi krafist þess að pilturinn yrði dæmdur til refsingar fyrir manndráp og tvær tilraunir til manndráps. Saksóknari lét dómara um að ákveða lengd fangelsisvistar.
,,Pilturinn er enn undir sjálfræðisaldri. Þinghald í málinu var lokað vegna ungs aldurs brotaþola og hins ákærða. Hann var viðstaddur dómsuppkvaðninguna.
Réðist með hnífi á ungmenni sem sátu í bíl
Pilturinn, sem var þá sextán ára, réðst á fimm ungmenni sem voru í bíl í miðbæ Reykjavíkur á menningarnótt. Hann braut hliðarrúðu og stakk ítrekað pilt sem þar sat í bílnum með hnífi. Fjögur ungmenni náðu að forða sér úr bílnum. Ung stúlka varð eftir í honum og réðist pilturinn því næst að henni og stakk hana ítrekað, en sú stúlka var fyrrverandi kærasta piltsins.
Bryndís Klara reyndi að stöðva árás piltsins á stúlkuna sem sat í bílnum, en þá réðist hann á Bryndísi Klöru og veitti henni banvæna áverka.
Foreldrar Bryndísar fóru hvort um sig fram á sautján milljónir króna í miskabætur. Fyrir hönd stúlkunnar og piltsins sem pilturinn stakk var krafist átta milljóna í miskabætur, fyrir hvort. Þá var krafist fimm milljóna króna í miskabætur til handa piltinum sem sat undir stýri á bílnum. Samtals námu kröfur um miskabætur 55 milljónum króna.“ Segir í frétt Rúv.