• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Yfirlýsing vegna brunans á Bræðraborgarstíg 1

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
30. júní 2020
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Á hverjum einasta degi hef ég heyrt um launaþjófnað, arðrán, misbeitingu, rugl og ógeð. „Besti vinnumarkaður í heimi“ er ekkert nema martröð

Efling – stéttarfélag sendir dýpstu samúðarkveðjur til aðstandenda þeirra sem létu lífið í brunanum á Bræðraborgarstíg 1 þann 25. júní síðastliðinn. Jafnframt sendir félagið bataóskir til þeirra sem urðu fyrir tjóni og áfalli vegna brunans.
Staðfest er að tvö af þeim þremur sem létust í brunanum voru félagsmenn í Eflingu, verkafólk af erlendum uppruna sem komu hingað til lands til að vinna verkamannastörf. Hingað komin lentu þau í gildru einstaklings sem leigði þeim hættulegt húsnæði í óboðlegu umhverfi. Niðurstöðu úr rannsókn lögreglu er beðið, en Efling getur þó ekki annað en sett brunann í samhengi við þá meðferð sem aðflutt vinnuafl verður fyrir á Íslandi. Enginn skortur hefur verið á ábendingum um lögleysu og vanrækslu þegar kemur að stöðu erlends verkafólks á Íslandi. Á það bæði við réttindi á vinnumarkaði og húsnæðisaðbúnað.
Skrifað var ítarlega um ástand eignarinnar á Bræðraborgarstíg í Stundinni fyrir fimm árum síðan. Stundin fjallaði einnig um búsetu fjölda fólks, þar á meðal barna, í iðnaðarhúsnæði í janúar 2019. Kveikur á RÚV fjallaði um líf fátækra, m.a. í iðnaðarhúsnæði, í mars 2020. Kveikur fjallaði þar áður um brot gegn réttindum erlends verkafólks sem þrífast undir hatti starfsmannaleiga í október 2018.
Efling setti óeðlilegt samspil húsaleigukjara og ráðningarsambands á dagskrá í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins veturinn 2018-2019. Auk þess var sett fram skýr krafa um stórhertar refsi- og sektarheimildir gegn kjarasamningsbrotum. Lendingin varð sú að ríkisstjórnin setti fram mörg loforð um úrbætur á vinnumarkaðslöggjöfinni og hert viðurlög í skjalinu „Stuðningur stjórnvalda við lífskjarasamninga“ (sjá liði 22, 25 og 26). Efndir á þessum loforðum hafa enn ekki sést og samkvæmt upplýsingum Eflingar frá ASÍ standa Samtök atvinnulífsins einörð gegn þeim.
Efling krefst þess að félagsmálaráðherra og ríkisstjórnin efni tafarlaust loforð um hertar aðgerðir gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði, þar með talið loforð um sektarheimildir vegna kjarasamningsbrota og önnur viðurlög.
Efling krefst þess að allar stofnanir hins opinbera sem fara með eftirlit varðandi öryggi og heilsu borgaranna sýni tilætlaða árvekni og taki eðlilegt frumkvæði að íhlutun þegar við á, en sýni ekki af sér vanrækslu og sinnuleysi þegar láglaunafólk eða fólk af erlendum uppruna á í hlut.
Efling krefst þess að borin sé eðlileg virðing fyrir lífi, heilsu og öryggi alls verkafólks og að bundinn verði endir á kerfisbundna mismunun gegn verkafólki af erlendum uppruna.
Efling minnir á að öll þjónusta félagsins stendur fórnarlömbum brunans sem eru í Eflingu opin.
„Ég er harmi lostin. Í starfi mínu síðustu tvö ár hef ég á hverjum einasta degi heyrt um launaþjófnað, arðrán, misbeitingu, rugl og ógeð. „Besti vinnumarkaður í heimi“ er ekkert nema martröð fyrir mörg af okkar aðfluttu félögum. Ég krefst þess að við hættum að þola skeytingarleysi þeirra sem völdin hafa yfir lífsskilyrðum félaga okkar sem þurfa mest af öllum á því að gengið verði í að bæta þeirra kjör og aðstæður. Hinn hræðilegi harmleikur verður að hafa raunverulegar afleiðingar. Ég hef engin orð til að lýsa Íslandi ef að það gerist ekki,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    411 deilingar
    Share 164 Tweet 103
  • Næsta lægð nálgast

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Græðgin er komin út fyrir öll mörk – Launaþjófnaður?

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Covid-bóluefnin eru þau hættulegustu sem finnast segir hjartalæknir

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?