• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 9. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Gjaldskrá sundlauga breytt til að sækja tekjur af eldri ferðamönnum

Gjaldskrá sundlauga breytt til að sækja tekjur af eldri ferðamönnum

Um 14 þúsund eldri ferðamenn í sund árlega 

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
30. júní 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Gjaldskrá sundlauga Reykjavíkurborgar verður breytt með það að markmiði að sækja tekjur af eldri ferðamönnum sem hingað til hafa notið gjaldfrjáls aðgengis að sundlaugum borgarinnar. Tekið verður upp árskort fyrir eldri borgara á verði sem jafngildir þremur stökum ferðum fullorðinna í sund. Stefnt er að því að auka stuðning við heilsueflingu eldra fólks í samstarfi við íþróttafélögin í borginni. 

Samkvæmt tillögu menningar,- íþrótta- og tómstundaráðs, sem samþykkt var í morgun og tekin verður fyrir í borgarráði, munu sundgestir sem náð hafa 67 ára aldri greiða stakt gjald fullorðinna og gjaldflokkurinn „eldri borgarar“ verður tekinn úr gjaldskránni.

Verð á árskorti fyrir eldri borgara mun nema gjaldi þriggja sundferða, eða fjögur þúsund krónum samkvæmt núverandi gjaldskrá og mun breytingin taka gildi frá fyrsta ágúst næstkomandi. Ný árskort fyrir eldri borgara taka gildi fyrsta október næstkomandi. Fram að þeim tíma geta eldri borgarar framvísað sundkortum sem nú eru í gildi. Öryrkjar fá áfram frían aðgang að sundlaugum borgarinnar gegn framvísun öryrkjakorts.

Um 14 þúsund eldri ferðamenn í sund árlega

Sund er mikilvæg heilsubót og mikill fjöldi fólks sækir átta sundlaugar Reykjavíkur. Margir eldri borgarar eru fastagestir og hafa þeir fengið frían aðgang að laugum borgarinnar lengi. Mikilvægt er að tryggja þessum hópi áfram gott aðgengi að laugunum og er markmið gjaldskrárbreytingar að tryggja að eldri ferðamenn greiði fyrir aðgang að þessari mikilvægu þjónustu.

Um 14 þúsund ferðamenn sem náð hafa 67 ára aldri sækja sundlaugar Reykjavíkur á hverju ári og verður borgin því af tekjum sem geta numið um 18,5 milljónum króna árlega. Sveitarfélögum er óheimilt að mismuna gestum eftir búsetu og er því ekki hægt að veita einungis eldri Reykvíkingum frían aðgang að sundlaugum borgarinnar. Heimilt er hins vegar að bjóða upp á gjaldskrá með mismunandi gjaldflokka og veita afsláttarkjör, til dæmis með útgáfu árskorta.

Aukinn stuðningur við heilsueflingu eldra fólks

Reykjavíkurborg greiðir niður sundferðir allra gesta og greiðir að meðaltali 1.200 krónur með hverjum gesti sem sækir sundlaugarnar, eða um 50% af stöku gjaldi.  Með tillögunni er áætlað að tekjur Reykjavíkurborgar geti aukist um 30 milljónir króna á ári en samhliða tillögunni vinnur menningar,- íþrótta- og tómstundaráð að því við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár að móta tillögu um að hluta þessara tekna verði varið til að auka stuðning við heilsueflingu eldra fólks í samstarfi við íþróttafélög borgarinnar. Þess má geta að ráðið hefur, með samþykkt borgarráðs, skipað sérstakan stýrihóp til að fara yfir gjaldskrár stofnana menningar- og íþróttasviðs, með það að markmiði að einfalda þær og rýna möguleika á að auka tekjur borgarinnar. Hópurinn stefnir að því að skila af sér tillögum í haust.

Umræða
Share4Tweet3
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Solaris kærir vararíkissaksóknara til lögreglu

    ,,Stanslaust klisju kjaftæði“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • ,,Ég á kvótann með þjóðinni – voru með útsýnisflug fyrir kvótaþega“

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Laus hundur veittist að barni

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Öskraði úti á svölum og sprautaði úr slökkvitæki á lögreglumenn

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • „Bankinn stjórnar lífi þínu“ – margir viðskiptavinir reiðir vegna eftirlits bankanna

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?