Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Vestfjörðum voru kallaðar út á tólfta tímanum í dag eftir að strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði.
Skipstjóri fiskibáts sem var staddur í grenndinni hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og tilkynnti um að báturinn væri sokkinn og að einn maður væri í sjónum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar og áhöfnin á björgunarskipinu Verði voru kallaðar út á mesta forgangi. Þá voru öll skip á svæðinu beðin um að halda á staðinn. Áhöfnin á björgunarskipinu var fyrst viðbragðsaðila á vettvang og náði manninum úr sjónum. Hann var fluttur með björgunarskipinu til Patreksfjarðar.
Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Vestfjörðum og rannsóknarnefndar samgönguslysa.