Matarkjallarinn er Grill & kokteilbar í kjallara 160 ára gamals húss í miðbæ Reykjavíkur. ,,Fyrir okkur er Matur fyrir líkamann og tónlist fyrir sálina.“ Segir í kynningu á staðnum og það er alveg hægt að taka undir það. Maturinn er frábær, sem og tónlistin og þjónustan sem gerir upplifunina fullkomna.
Brasserie matargerð ræður ríkjum i eldamennskunni þar sem áherslan er á íslenskt hráefni. Matseðillinn er fagmannlega útbúin af hæfileikaríkum og metnaðarfullum matreiðslumönnum. Upplifðu Leyndó matseðilinn, sem tekur þig uppí skýin.
Jafnframt eru mörg borð þar sem fjölskyldur og vinir njóta þess sem boðið er upp á á staðnum. Það er vandasamt að velja á milli rétta á matseðlinum, því hann er svo girnilegur og tónlistin er alveg passlega stillt til að gera stemminguna fullkomna.
Matarkjallarinn er staðsettur að Austurstræti 2, þegar komið er inn, finnur maður strax hversu notalegur og kósý staðurinn er. enda greinlegt að pör koma til dæmis þangað til að eiga góða stund saman við tveggja manna borð.
Barinn er með úrval kokkteila, útbúna af framúrskarandi barþjónunum okkar. Meðan þú borðar, hljómar lifandi tónlist frá Bösendorfer flyglinum okkar, sem var smíðaður árið 1880 í Vínarborg.
,,Leyndarmálið er okkar eins og er, en það gæti orðið þitt.“ Segir í kynningu á staðnum og það er hverju orði sannara.
Mælum með að panta borð á þessum frábæra veitingastað, það er mikið úrval á matseðlinum og vínseðli og réttirnir mjög bragðgóðir og vel fram settir af fagmennsku.
Þægilegur og kósý staður þar sem er virkilega stjanað við gesti og starfsfólkið leggur sig allt fram við að gera upplifunina frábæra. Þetta er veitingastaður sem mann langar að koma aftur á!
Hér er hægt að skoða veitingastaðinn