Hugleiðingar veðurfræðings
Dálítill éljagangur verður á norðurhluta landsins fram undir hádegi í dag og samhliða því má búast má við lélegu skyggni og efiðum aksturskilyrðum, einkum á fjallvegum, á Norðausturlandi. Annars er hægari vindur í öðrum landshlutum, en snjókoma með köflum á Suðaustur- og Austurlandi. Þurrt verður að mestu suðvestantil.
Í kvöld nálgast djúp lægð landið úr Suðri sem veldur norðaustlægum áttum á öllu landinu. Snemma í fyrramálið má búast við allt að 28 m/s á Suðausturlandi, en annars 13-20. Dregur úr vindi suðaustantil síðdegis á morgun, en allt að 25 m/s norðvestan og vestantil annað kvöld.
Lægðinni fylgir fremur hlýtt loft og því má búast við talsvert mikillri úrkomu víða um land, fyrst sem snjókoma eða slydda en síðar er útlit fyrir rigningu, einkum sunnan- og austantil. Þar sem mikill snjór hefur fallið síðustu daga má búast við töluverðri hláku og er fólk hvatt til að hreinsa frá niðurföllum. Spá gerð: 30.10.2025 06:37. Gildir til: 31.10.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Breytileg átt 3-10 m/s, en suðvestan 10-15 norðaustantil í fyrstu. Víða dálítil él, snjókoma með köflum suðaustantil, en þurrt að mestu suðvestantil. Frost víða 0 til 7 stig yfir daginn.
Vaxandi norðaustanátt seint í kvöld við austurströndina með dálítilli snjókomu eða slyddu.
Gengur í norðaustan 20-28 suðaustantil á morgun, annars 13-20. Snjókoma eða slydda með köflum, en síðar rigning. Talsverð eða mikil úrkoma á austanverðu landinu. Gengur í norðaustan 18-25 norðvestan- og vestantil síðdegis en dregur úr vindi á Suðausturlandi. Hiti 2 til 11 stig, mildast sunnantil.
Spá gerð: 30.10.2025 10:05. Gildir til: 01.11.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Minnkandi norðaustanátt, 5-13 m/s síðdegis, en 13-18 norðvestantil fram á kvöld. Rigning eða slydda með köflum, en snjókoma og skafrenningur á Vestfjörðum. Talsverð rigning austan- og suðaustantil. Hiti 1 til 9 stig, mildast sunnanlands.
Á sunnudag:
Norðaustan 8-15 og snjókoma norðvestantil, en dregur úr ofankomu síðdegis. Annars hægari með lítilsháttar vætu. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst.
Á mánudag:
Gengur í austan og norðaustan 8-15. Víða rigning eða slydda, en úrkomuminna norðvestantil. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt og víða rigning eða slydda, en lengst af þurrt austanlands. Hiti 2 til 7 stig.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir austlæga átt með éljum eða slydduéljum, en þurrt að mestu norðantil. Hiti í kringum frostmark.
Spá gerð: 30.10.2025 08:13. Gildir til: 06.11.2025 12:00.

