Flugfreyjur og flugþjónar sem misstu vinnuna við gjaldþrot WOW air munu ekki fá nein laun frá fyrirtækinu nú um mánðarmótin. Eins og gefur að skilja er það mikið fjárhagslegt högg fyrir þessa einstaklinga. Við erum öll með okkar skuldbindingar og reikninga að borga og það eiga ekki allir varasjóði eða vel stæða ættingja að leita til.
Vegna stöðunnar hefur stjórn Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) og Alþýðusamband Íslands ákveðið að tryggja fé þannig að starfsfólk fái lágmarks aðstoð í gegnum Flugfreyjufélag Íslands.
Þar sem um er að ræða 35% af félagsmönnum Flugfreyjufélagsins mun ASÍ hlaupa undir bagga fjárhagslega og verða þannig hluti af lausninni. Vonir standa til að hægt verði að inna greiðslurnar af hendi í þessari viku en starfsfólk þarf að koma á skrifstofu FFÍ og framselja kröfu í þrotabúið.
Upphæð aðstoðarinnar fer eftir möguleika FFÍ til að afla upplýsinga um marslaun úr þrotabúinu og því er ekki hægt að staðfesta hana sem stendur. Frekari upplýsingar veitir FFÍ til félagsmanna um leið og mögulegt er.