Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, segir að ríkisstjórnin ætli ekki að gera breytingar á því magni sem heimilt er að veiða í hverri veiðiferð á strandveiðum. Slíkar hugmyndir hafi verið viðraðar í ráðuneytinu en ríkisstjórnin hafi verið sammála um að gera það alls ekki.
Fjallað er um málið á fréttavegnum Vísi.is og þar kemur fram að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hafi lagt fram frumvarp sem ætlað er að tryggja 48 daga strandveiðitímabil í sumar, en í greinargerð frumvarpsins var kveðið á um að hugsanlega þyrfti að minnka leyfilegan dagsafla strandveiðibátanna.
Sigurjón Þórðarson segir að samstaða hafi verið í ríkisstjórninni um að grípa alls ekki til þessara lausna.
„En það voru hugmyndir um þetta í ráðuneytinu, þannig þetta hefur bara óvart haldist inni í greinargerðinni,“ segir hann.
Strandveiðimenn þurfi því ekki að hafa áhyggjur af slíkri skerðingu.
„Þetta er bara alveg óvart í frumvarpinu, og það er bara gott að fá það leiðrétt,“ segir Sigurjón í samtali við Vísi.is.