• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 9. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Víðáttumikil lægð veldur hvassri norðaustanátt – Veðurviðvaranir

Víðáttumikil lægð veldur hvassri norðaustanátt – Veðurviðvaranir

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
31. október 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Víðáttumikil lægð er undan Suðurströnd landsins sem veldur hvassri norðaustanátt víða um land, en stormi á Suðausturlandi og á Vestfjörðum fram á kvöld. Lægðin ber með sér hlýtt og rakt loft úr suðri, hitatölur geta ná allt að 11 stigum sunnantil, og gera má ráð afar umhleypingasömu veðri. Víða rigning eða slydda, en talsverð rigning á Suðaustur- og Austurlandi.

Vegna mikillar snjókomu síðustu daga má gera ráð fyrir asahláku og glerhálku víða á sunnanverðu landinu og á Austfjörðum sem getur valdið hættu. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám. Viðvaranir hafa verið gefnar úr vegna vinds, asahláku og úrkomu.

Síðdegis á laugardag dregur víða úr vindi, en þó áfram stormur á Vestfjörðum. Útlit er fyrir talsverða rigningu norður á Ströndum. Spá gerð: 31.10.2025 07:36. Gildir til: 01.11.2025 00:00.

Gul viðvörun vegna veðurs: Suðurland, Faxaflói, Breiðafjörður, Vestfirðir, Austurland að Glettingi, Austfirðir, Suðausturland, Miðhálendi og Strandir og norðurland vestra 

Veðurhorfur á landinu
Norðaustan 20-28 suðaustantil, annars 13-20. Talsverð eða mikil rigning eða slydda á Suðausturlandi, Austfjörðum og Austurlandi. Rigning eða slydda með köflum í öðrum landshlutum.
Norðaustan 18-25 norðvestantil eftir hádegi en dregur heldur úr vindi á Suðausturlandi.

Norðaustan 13-20 norðvestantil í fyrramálið en annars 8-13. Rigning eða slydda austan- og norðanlands en úrkomulaust að mestur suðvestantil.Dregur úr vindi annað kvöld.

Ört hlýnandi veður. Hiti 2 til 11 stig eftir hádegi, hlýjast sunnantil.
Spá gerð: 31.10.2025 07:52. Gildir til: 02.11.2025 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Fremur hæg breytileg átt sunnantil og úrkomulaust að mestu. Norðaustan 5-13 m/s á Vestfjörðum og á annesjum norðanlands og rigning eða slydda, en snjókoma til fjalla. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst.

Á mánudag:
Norðaustan 5-10 m/s, en 10-15 norðvestantil og við suðausturströndina. Él á Vestfjörðum. Rigning með suðurströndinni eftir hádegi en sunnantil á landinu um kvöldið. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst.

Á þriðjudag:
Norðaustan 5-13 m/s. Rigning með köflum sunnan-og austanlands en snjókoma inn til landsins. Úrkomulítið norðvestantil. Hiti 1 til 7 stig, hlýjast syðst.

Á miðvikudag:
Austan og norðaustan 5-13 m/s. Stöku él norðanlands, en rigning allra syðst. Hiti 0 til 5 stig, hlýjast syðst.

Á fimmtudag:
Austan- og norðaustanátt, 5-10 m/s. Úrkomulaust að mestu. Vægt frost inn til landsins en 1 hiti til 7 stig úti við sjóinn.
Spá gerð: 31.10.2025 09:10. Gildir til: 07.11.2025 12:00.

 

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Grillmarkaðurinn er fyrsta flokks veitingastaður – Frábærar veitinga og þjónusta

    Stóra vandamálið á húsnæðismarkaði er skipulagt ofbeldi

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Fjármálaráðherra vill að HS Orka, Bláa Lónið ofl. greiði varnargarða

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Þrír látnir vegna mikils öldugangs á Tenerife

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Íslendingur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Saksóknari handtekinn og færður í fangageymslu

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?