• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fréttatíminn : Vinsælast í mars 2019 – ,,Framsalið bjó til veiðiheimildir sem hægt var að selja fyrir stórfé og bjó til eigendur sem juku skuldirnar um 400 milljarða á 12 árum''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
31. desember 2019
in Fólk
A A
0

 

Eftir: Kristinn H Gunnarsson, Þ. 26. september 2010

,,Framsalið sem átti að búa til stór og öflug útgerðarfyrirtæki, gerði það að nokkru leyti, en það bjó líka til veiðiheimildir sem hægt var að selja fyrir stórfé, og það bjó til eigendur sem juku skuldirnar um 400 milljarða króna á 12 árum. Þessir peningar fóru út úr fyrirtækjunum til eigenda sinna. Óréttlætið breytti of mörgum útgerðarmönnum í fjárplógsmenn.
Hagkvæmnin sem þjóðin átti að njóta varð að persónulegri hagkvæmni í bankabókum á Tortola. Óréttlátt kerfi er og verður alltaf óhagkvæmt, það getur ekki endað öðru vísi. Fullyrðingin um hið hagkvæma kvótakerfi þrátt fyrir innbyggt óréttlæti er goðsögnin ein.“
Kvótakerfið í sjávarútvegi er óréttlátt. Framsalinu fylgir að fáir auðgast vel á annarra kostnað. Samþjöppun aflaheimilda dregur úr tekjum á einum stað og verðfellur eignir en bætir stöðuna á öðrum stað. Þetta bitra óréttlæti er varið með því að benda á hagkvæmnina sem framsalinu fylgir. Minni tilkostnaður verður við veiðarnar og útgerðin færist í hendur þeirra sem best kunna að stunda atvinnurekstur. Ávinningur þjóðarinnar af kerfinu með framsalinu sé ótvíræður þrátt fyrir ákveðið óréttlæti.
Nú eru liðin (29 ár) síðan framsalið var leyft og í annað sinn er verið að endurskoða löggjöfina og gera úttekt á þróuninni. Hin óvænta staðreynd sem dregin er fram í nýlegum opinberum skýrslum er að goðsögnin um hið hagkvæma óréttlæti er röng. Óréttlætið hefur ekki fært þjóðinni ávinning. Þvert á móti þá er óréttlætið sjálf meinsemdin sem hefurkomið í veg fyrir að hagkvæmni eða ávinningur hafi skilað sér til þjóðarinnar. Órettlætið hefur reynst vera óhaghvæmt fyrir alla, nema þá fáu sem hafa á síðustu árum dregið fjögur hundruð milljarða króna út úr atvinnugreininni. Óréttlætið hefur komið fyrirtækjunum í verri stöðu en dæmi eru um og á þjóðina eru að falla stærri einkavíxlar en nokkru sinni fyrr.
Í skýrslu rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri sem kom út í maí síðastliðnum eru merkilegar upplýsingar sem vert er að gefa gaum. Þar kemur fram að samþjöppun veiðiheimilda hafi haldið áfram en ekki skilað sér í framleiðniaukningu í veiðunum. Fimm stærstu kvótahafarnir hafa aukið hlut sinn í heildarkvóta úr 17% árið 1995 í 34% árið 2007. Aflinn var 112 tonn af þorskígildum á hvert starf árið 1991 en 111 tonn árið 2008. Öll framleiðniaukningin í sjávarútveginum hefur orðið í vinnslunni, en í henni er ekkert kvótakerfi og engin takmörkun á atvinnufrelsi manna. Aflinn á hvert starf í fiskvinnslunni var árið 1991 87 þorskígildistonn en var orðinn 151 tonn árið 2008.
Eftir: Kristinn H Gunnarsson, Þ. 26.9. 2010

Framsalið, grundvöllur kvótakerfisins, er heldur ekki að skila því að kvóti hvers árs sé úthlutað til þeirra sem svo veiða fiskinn. Í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands frá maí 2010 eru upplýsingar um viðskipti með veiðiheimildir. Þar kemur fram að um 40% af kvótanum í aflamarkskerfinu skipti um hendur og er því veiddur af öðrum en fær úthlutunina. Hlutfallið er enn hærra eða ríflega 50% í smábátakerfinu. Þessi viðskipti með árskvótann, aflamarkið, hafa frekar farið vaxandi en hitt. Þetta þýðir að færari útgerðarmenn eru ekki að leysa þá slakari af hólmi eins og framsalið á að leiða til. Þvert á móti gerist hið gagnstæða, hæfari útgerðarmennirnir komast ekki inn í kerfið heldur verða að greiða hinum hátt árlegt leigugjald fyrir veiðarnar.
Nýr hagkvæmur útgerðarmáti sem verður til vegna breyttra aðstæðna nýtur sín ekki vegna leigugjaldsins og það viðheldur óhagkvæmari útgerð mun lengur en efni standa til. Heildarkostnaður við veiðarnar verður meiri en þarf að vera. Leiguliðakerfið verndar skussana og verðlaunar þá að auki. Það er grundvallaratriði í skilvirku fiskveiðistjórnunarkerfi að leyfunum á hverjum tíma sé úthlutað til þeirra sem veiða fiskinn. Það er mikill misbrestur á því og það kostar þjóðina tugi milljarða króna á hverju ári.
Þetta mikla svigrúm til þess að veiða ekki eigin kvóta árum saman heldur framselja hann, óréttlætið sjálft , hefur leitt til þess að bókfært eigið fé sjávarútvegsins hefur þurrkast út á fáum árum. Nettóskuldirnar voru 90% af útflutningstekjum árið 1997 en voru komnar í 272% af útflutningstekjum árið 2008. Það gerðist án þess að nokkur framleiðniaukning hafi orðið í veiðunum.
Framsalið sem átti að búa til stór og öflug útgerðarfyrirtæki, gerði það að nokkru leyti, en það bjó líka til veiðiheimildir sem hægt var að selja fyrir stórfé, og það bjó til eigendur sem juku skuldirnar um 400 milljarða króna á 12 árum. Þessir peningar fóru út úr fyrirtækjunum til eigenda sinna.
Óréttlætið breytti of mörgum útgerðarmönnum í fjárplógsmenn. Hagkvæmnin sem þjóðin átti að njóta varð að persónulegri hagkvæmni í bankabókum á Tortola. Óréttlátt kerfi er og verður alltaf óhagkvæmt, það getur ekki endað öðru vísi. Fullyrðingin um hið hagkvæma kvótakerfi þrátt fyrir innbyggt óréttlæti er goðsögnin ein. Eigi kerfið að virka fyrir þjóðarhag verður að leiðrétta óréttlætið. Undan því verður ekki vikist.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/03/18/strandveidar-frjalsar-og-utan-kvota/
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    86 deilingar
    Share 34 Tweet 22
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Risagjaldþrot Heima ehf. – Heimahúsið í sama húsnæði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?