Ríkisstjórn Íslands ákveður að öryrkjar eigi að lifa á 220.000 krónum
Unnar Erlingsson vaknaði upp við þann veruleika að geta ekki lengur séð fyrir fjölskyldu sinni. Vonandi þarft þú aldrei að upplifa það sem hann upplifir nú.
Öbí hefur vakið athygli á ræðu hans þar sem hann lýsir upplifun sinni sem hann segir vera skömm að þurfa að þiggja hjálp þegar eigin starfsgeta þrýtur, til þess að eiga í sig og á. Hann segir þungbært að ,,hlusta á sögur um meinta bótasvikara sem lifi á kerfinu, kerfinu sem ég og þú komum á, til þess að mæta fólki í okkar stöðu”
Þá vekur Öbí athygli á því að fullfrískt fólk sem skyndilega verður fyrir því að verða óvinnufært séu skammtaðar aðeins 220.000 krónur ævina á enda frá ríkisstjórn Íslands. En sú fjárhæð er langt undir framfærslukostnaði eins og allir vita og hrekkur varla fyrir húsnæðiskostnaði og þá eru öll útgjöld eftir í mánuðinum, matur ofl.
https://gamli.frettatiminn.is/launasedill-oryrkja-i-jan-2020/