• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 1. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ég er reið, al­veg svaðal­ega reið, en sem bet­ur fer gríp ég bara til „penn­ans“

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. janúar 2019
in Innlent
A A
0

Reiðin kraumar

Sig­ur­laug Guðrún I Gísla­dótt­ir

Ég er reið, al­veg svaðal­ega reið, en sem bet­ur fer gríp ég bara til „penn­ans“ en ekki hnef­ans. Fyrr­ver­andi og nú­ver­andi rík­is­stjórn­ir Íslands eru or­sök þess­ar­ar upp­söfnuðu reiði og ef ekki eitt­hvað stór­kost­legt ger­ist snemma á þessu ári mun svo sann­ar­lega gjósa. Ég viður­kenni að þessi upp­safnaða reiði bein­ist líka að hags­muna­sam­tök­um ör­yrkja sem enn halda úti sam­ræðum við stjórn­völd en láta teyma sig á asna­eyr­un­um.
Reiðin bein­ist líka að þeim sem skrifa pistla eins og kona með þrjár há­skóla­gráður skrifaði fyr­ir nokkru, en hún gaf í skyn að betra væri bara að fara á ör­orku og fá íbúð hjá ÖBÍ en að standa í hark­inu sem fylg­ir hinum ís­lenska leigu­markaði. Við þann lest­ur sauð upp úr hjá mér.

Ekki reyna að segja mér að þeir pen­ing­ar séu ekki til.

Að ein­stak­ling­ur með þrjár há­skóla­gráður skuli vera svo fá­fróður sýn­ir best hvað þessi þjóðfé­lags­hóp­ur, sem hvað verst stend­ur, glím­ir við, því sá sem veit það skrif­ar hvorki né seg­ir svona.

Hvað veit ég um þessi mál?

Ég á fjög­ur börn, þar af þrjá stráka sem all­ir eru fædd­ir lög­blind­ir og til­heyra því þeim hópi sem kall­ast ör­yrkj­ar. Þeir eru dæmd­ir til ævi­langr­ar fá­tækt­ar og eru í raun all­ar bjarg­ir bannaðar.

Katrín, Bjarni og Sig­urður, skammist

til að standa við gef­in lof­orð og af­nemið 

strax krónu-á-móti-krónu-skerðing­una.

Fötl­un þeirra fylg­ir ýmis auka­kostnaður sem við hin þurf­um ekki að greiða og ekki minnk­ar hann við að búa úti á landi og hafa ekki aðgang að eðli­legri ferðaþjón­ustu nema standa í sí­felldu betli til sveit­ar­fé­lags­ins um að greiða ákveðið marg­ar ferðir á mánuði. Ekki nóg með það held­ur þurfa þeir að skila inn skýrslu um hvert á að ferðast. Hver myndi sætta sig við það?
Ekki þeir og því leggja þeir mikið á sig til að vera óháðir og lifa sínu lífi án þess að hóp­ur fólks sé með nefið ofan í þeirra mál­um. Þeir stunda líka vinnu en þeir fá ekk­ert fyr­ir hana þar sem stjórn­völd taka nán­ast hverja krónu til baka vegna regl­unn­ar um krónu-á -móti-krónu-skerðingu. Hver sætt­ir sig við launa­lausa vinnu?

Eiga ekki sama rétt og aðrir

Þeim er líka gert að greiða í líf­eyr­is­sjóð en eiga þó ekki sama rétt úr þeim og aðrir. Af hverju? Jú, ef þú slasast á starfsævi þinni og verður að hætta að vinna færðu ekki bara ör­orku frá Trygg­inga­stofn­un held­ur einnig úr líf­eyr­is­sjóði þínum. Greiðslurn­ar úr þeim sjóði miðast við að bæta þér upp það tekjutap sem þú verður fyr­ir vegna slyss­ins. En strák­arn­ir mín­ir fá ekki krónu úr sín­um sjóði því regl­urn­ar eru þannig að þú færð greitt úr sjóðnum miðað við þær tekj­ur sem þú hafðir áður en þú ferð á ör­orku. Þar sem þeir eru fædd­ir svona er vita­skuld ekki um nein­ar tekj­ur að ræða fyr­ir ör­orku. Það þýðir að þeir öðlast aldrei sama rétt til greiðslna og aðrir en þurfa samt að greiða í sjóðinn af öll­um sín­um laun­um. Þykir þetta í lagi?

Starfs­getumatið marg­um­talaða ger­ir reiðina

enn meiri, því matið er svo vit­laust að

hver sem hef­ur „fulla fimm“ ætti að sjá það.

En er yf­ir­höfuð eitt­hvert ör­yggi í því að greiða í líf­eyr­is­sjóð? Nei, ekki hvað ör­orku varðar. Því skyldi eng­inn halda að hann sé „tryggður“ ef hann slasast eða veikist.
Ég á nefni­lega líka eig­in­mann sem hef­ur þrælað og stritað alla sína ævi. Hann varð fyr­ir því að slasast í vinn­unni og fékk svo krabba­mein í ofanálag. Við héld­um að þar sem hann hafði alltaf greitt í líf­eyr­is­sjóð þá myndi þetta allt sleppa fjár­hags­lega (þið munið regl­una um að líf­eyr­is­sjóðir bæti þér upp tekjutapið). Þegar ljóst var að hann færi ekki aft­ur á vinnu­markaðinn var sótt um í líf­eyr­is­sjóði aft­ur­virkt um eitt ár. Urðum við mjög glöð þegar þar skilaði sér um 1,1 millj­ón kr. fyr­ir eitt ár, takk kær­lega.
Næsta ár brá okk­ur held­ur bet­ur í brún því Trygg­inga­stofn­un krafði bónd­ann um rúm­ar 900.000 kr. vegna of­greiðslu ör­orku­bóta. Það var vegna þess að hann hafði svo mikl­ar tekj­ur, þ.e. þess­ar 1.100.000 kr. úr líf­eyr­is­sjóðnum. Þó voru það bara greiðslur sem voru, eins og lög gera ráð fyr­ir, til að bæta upp það tekjutap sem hann hafði orðið fyr­ir vegna slyss og veik­inda. En þetta tók Trygg­inga­stofn­un nán­ast allt aft­ur til sín. Hin svo­kallaða eign í líf­eyr­is­sjóði skilaði því í raun engu nema sár­ind­um og reiði og gríðarlegu álagi á fjöl­skyld­una. Undr­ast nokk­ur að ég sé reið?
Starfs­getumatið marg­um­talaða ger­ir reiðina enn meiri, því matið er svo vit­laust að hver sem hef­ur „fulla fimm“ ætti að sjá það. En inn­an stjórn­sýslu og þings­ins virðast fáir hafa all­ar fimm­urn­ar, miðað við verk­in þeirra.

Þeir eru dæmd­ir til ævi­langr­ar fá­tækt­ar 

og eru í raun all­ar bjarg­ir bannaðar.

Það er al­veg krist­al­tært að hver sá sem mæl­ir með þessu mati hef­ur ekki glóru­hug­mynd um líf ör­yrkja og hvorki hæfi­leika né vilja til að setja sig inn í þær aðstæður. Þeim sem mæla með þessu mati býð ég að hitta mig og ræða við mig og mína aug­lit­is til aug­lit­is því það væri allt of langt mál að rök­styðja það hér í lit­um grein­ar­stúf.
Ég er hins veg­ar viss um að ekk­ert ykk­ar hef­ur í raun áhuga á að vita meira, því þetta snýst jú allt um pen­inga hvað ykk­ur varðar. Og ekki reyna að segja mér að þeir pen­ing­ar séu ekki til.
Það er líka með ólík­ind­um, eins og ég hef áður sett í slíka grein, að fólk með fulla starfs­getu skuli ekki sjá sóma sinn í að styðja kröf­ur ör­yrkja held­ur láta eins og því komi þetta ekki við. Hvað ger­ist ef fólk miss­ir heils­una? Er það til í að hafa þær tekj­ur sem hér að ofan grein­ir?
Er eitt­hvert ljós fram und­an? Lítið, en þó… Ljósið þessa dag­ana er að verka­lýðsfé­lög­in eru aðeins far­in að taka und­ir með þess­um hópi ein­stak­linga sem verst stend­ur. Rödd­in þaðan mætti þó vera sterk­ari og hefði löngu átt að vera orðin mun há­vær­ari.
Katrín, Bjarni og Sig­urður, skammist til að standa við gef­in lof­orð og af­nemið strax krónu-á-móti-krónu-skerðing­una. Það væri a.m.k. góð byrj­un, eða segið af ykk­ur ella. Þetta geng­ur ein­fald­lega ekki leng­ur.
Greinin var birt á vef ÖBÍ.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?