• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ferðalöngum er ráðlagt að kanna aðstæður á vegum hjá Vegagerðinni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

,,Í dag eru horfur á hvassri norðanátt með ofankomu norðan- og austanlands. Þar er því útlit fyrir erfið akstursskilyrði og mögulega spillist færð á þessum slóðum, þetta á sérílagi við á fjallvegum.“ Segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. ,,Ferðalöngum er ráðlagt að kanna aðstæður á vegum hjá Vegagerðinni áður en lagt er í hann. Í fjöllóttu landi eins og Íslandi getur verið breytileiki í vindhraða, því fjöllin ýmist skýla fyrir vindi, eða magna hann upp. Á sunnanverðu landinu er útlit fyrir úrkomulaust veður í dag, en sums staðar má búast við snörpum vindhviðum, þar sem fjöll ná að magna upp norðanáttina. Sem dæmi má nefna að þegar þetta er skrifað eru vindhviður kringum 38 m/s að mælast á Kjalarnesi. Frost samkvæmt hitamælum verður vægt í dag, en þó er napurt að vera útivið þegar kælandi áhrif vindnæðingsins bætast við.
Seinnipartinn í dag fer vindhraði að síga niðurávið, en það gerist mjög hægt. Raunar þarf til þess allt kvöldið og alla næstu nótt og það er ekki fyrr en á morgun sem norðanáttin hefur gengið almennilega niður. Á morgun er semsagt útlit fyrir hæglætisveður á landinu og viða bjart og fallegt um að litast. Dálítil él verða viðloðandi norðurströndina og stöku él eru væntanleg syðst á landinu síðdegis. Það kólnar hjá okkur og frostið nær tveggja stafa tölu allvíða á norðanlands.
Á mánudag skiptir veðrið aftur um gír, þá gengur í allhvassa suðaustanátt með slyddu eða snjókomu, en síðar rigningu á láglendi og hiti fer vel uppfyrir frostmark. Á Norður- og Austurlandi er útlit fyrir hægari vind og þurrt veður fram eftir degi með minnkandi frosti á þeim slóðum.“

Veðurhorfur á landinu

Norðan og norðaustan 13-20 m/s, hvassara á stöku stað framan af degi. Dregur heldur úr vindi síðar í dag. Él norðan- og austanlands, en léttir til sunnan- og suðvestanlands. Frost 0 til 6 stig. Lægir og styttir að mestu upp í nótt. Austlæg eða breytileg átt 3-8 á morgun. Víða bjart veður og yfirleitt þurrt, en dálítil él við norðurströndina og einnig sunnantil á landinu síðdegis. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum norðanlands. Spá gerð: 09.02.2019 10:08. Gildir til: 11.02.2019 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag:
Gengur í suðaustan 13-18 m/s með slyddu eða snjókomu, en síðar rigningu á láglendi. Hægari vindur og þurrt á Norður- og Austurlandi fram á kvöld. Hlýnandi veður, hiti 1 til 5 stig sunnan heiða seinnipartinn og minnkandi frost fyrir norðan og austan.
Á þriðjudag:
Suðlæg eða breytileg átt 5-13. Slydda eða snjókoma með köflum og hiti kringum frostmark, en rigning af og til og hiti allt að 5 stigum við suðurströndina.
Á miðvikudag:
Gengur í suðaustan hvassviðri eða storm með rigningu eða slyddu og hlýnandi veðri. Talsverð úrkoma á sunnaverðu landinu. Hiti 2 til 6 stig síðdegis.
Á fimmtudag:
Allhvöss suðvestanátt með skúrum og síðar éljum og kólnandi veðri. Dregur úr vindi þegar líður á daginn og léttir til fyrir austan.
Á föstudag:
Útlit fyrir suðvestanátt. Él sunnan- og vestanlands, en annars þurrt og bjart að mestu. Hiti kringum frostmark.
Spá gerð: 09.02.2019 08:23. Gildir til: 16.02.2019 12:00.

 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?