Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi átta húsleitir í umdæminu seint í fyrrinótt og í gærmorgun, m.a. á skemmtistað í miðborginni, vegna grunsemda hennar um umfangsmikla brotastarfsemi.
Lagt var hald á gögn, búnað og fjármuni, en öll málin tengjast.
Höfð voru afskipti af tuttugu og sex einstaklingum og voru tíu þeirra færðir á lögreglustöð til yfirheyrslu, en síðan sleppt úr haldi að þeim loknum.
Umræða