• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Kæru vegna seiðaeldis í Þorlákshöfn vísað frá

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent, Stangveiði, Veiði
A A
0
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur vísað frá kæru veiðifélags Árnesinga, Náttúruverndarsamtaka Íslands og náttúruverndarfélagsins Laxinn lifi, vegna útgáfu Matvælastofnunar á rekstrarleyfi fyrir allt að 500 tonna seiðaeldi á ári í seiðaeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í Þorlákshöfn.Niðurstaða nefndarinnar byggir á að náttúrverndarfélögin uppfylli ekki skilyrði til kæruaðildar að málinu þar sem fyrir liggi ákvörðun Skipulagsstofnunar um að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Þá vísaði nefndin einnig frá kæru veiðifélagsins með þeim rökum að það hafi ekki raunhæft gildi fyrir lögvarða hagsmuni þess að fá leyst úr ágreiningi um lögmæti rekstrarleyfisins. Vísaði nefndin þar til þess að um landeldi væri að ræða sem lúti öðrum sjónarmiðum en sjókvíaeldi. Í niðurstöðu nefndarinnar sagði: „Í landeldi því sem hér er til umfjöllunar er fiskurinn hins vegar í kerjum á landi og er komið í veg fyrir að hann sleppi í gegnum fráveitu með grindum á kerjum og á frárennsli, auk þess sem frárennslisvatn verður hreinsað með settjörn, tromlusíu eða öðrum sambærilegum eða betri búnaði.
Er helst að seiði sleppi ef óhöpp verða við dælingu í brunnbát, en eðli máls samkvæmt fer slík dæling eingöngu fram þegar seiði hafa náð ákveðinni stærð og eru afhent til brottflutnings. Þá er því ekki saman að jafna að seiði sleppi, sem e.t.v. eru ekki lífvænleg, eða fullvaxta fiskur.“ Að þessum sjónarmiðum virtum teldust hagsmunir veiðifélagsins ekki svo verulegir að þeir gætu skapað félaginu kæruaðild.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Stakk þrjá með hnífi í borginni

    Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    78 deilingar
    Share 31 Tweet 20
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Skipulögð glæpastarfsemi – Fimm í gæsluvarðhaldi

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Auglýsingaherferð SFS (LÍÚ) hefur engu skilað – Hundruðir milljóna í vaskinn

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?