• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fjármálaráðherrann Bjarni Benediktsson enn leiðréttur

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
22. mars 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

,,Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, fór með villandi ummæli í ræðustól Alþingis í morgun. Enn þarf ÖBÍ að leiðrétta ummæli ráðherrans á þessum vettvangi“

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, fullyrti á Alþingi í morgun að ÖBÍ hafni afnámi krónu-á-móti-krónu skerðingarinnar. Þetta er rangt. 

Guðmundur Ingi Kristinsson

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, spurðiráðherrann í morgun, hvernig ætti að afnema krónu-á-móti-krónu skerðinguna.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, svaraði þessu ekki. Hann ræddi  hins vegar samráðshóp stjórnvalda, sem félagsmálaráðherra skipaði í fyrra, til að endurskoða almannatryggingakerfið, og niðurstöðu hans:
„[…] þeirri niðurstöðu er hafnað af Öryrkjabandalaginu. Í þeirri lausn sem er á borðinu er verið að afnema krónu á móti krónu skerðinguna en því er hafnað.“
Þetta er rangt.
Með ummælum sínum bergmálar ráðherrann ummæli Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins á Alþingi í gær. ÖBÍ benti strax á að þau væru röng.  Öryrkjabandalag Íslands krefst þess að krónu-á-móti-krónu skerðingin verði afnumin tafarlaust og að örorkulífeyrir dugi til mannsæmandi afkomu. Þetta er og hefur verið eitt helsta baráttumál bandalagsins um árabil. Það veit ráðherrann vel.
Krónu-á-móti-krónu skerðingu á að afnema strax án tillits til annarra breytinga. Hún ein og sér heldur þúsundum fjölskyldna í fátæktargildru og hana á að afnema eina og sér.

Skýrt og klárt

Rétt er að halda því til haga að ÖBÍ hefur í starfi hópsins lagt fram raunhæfar tillögur til þess að afnema skerðinguna. Það er ekki í verkahring ÖBÍ að birta skýrsludrög opinberra starfshópa. Hins vegar telur ÖBÍ, í ljósi ummæla ráðherrans á Alþingi, sér skylt að upplýsa, að í drögum að lokaskýrslu starfshópsins, er hvorki að finna útfærslur á því hvernig né hvenær á að afnema krónu-á-móti-krónu skerðinguna í heild. Þar er heldur ekki að finna neitt um að mannsæmandi afkoma fólks með skerta starfsgetu verði tryggð.
Meðal annars þess vegna treystir ÖBÍ sér ekki til þess að skrifa undir skýrslu samráðshópsins.
Það yrði allri umræðu mjög til bóta að stjórnmálamenn kynntu sér málin áður en farið er með stóryrði úr ræðustól Alþingis.
Í þessu samhengi má benda á að þetta er í þriðja sinn á yfirstandandi þingi sem ÖBÍ finnur sig knúið til þess að leiðrétta ummæli fjármálaráðherra á Alþingi, sjá hér og hér.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    220 deilingar
    Share 88 Tweet 55
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Héraðssak­sókn­ari, rík­is­sak­sókn­ari ofl. segi af sér

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?