• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Stærsti hluthafinn í VSV krefst rannsóknar á eignatilfærslum tengdum Brimi hf.

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. apríl 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Krefst rannsóknar á eignatilfærslum tengdum Brimi hf

,,Seil ehf. telur að tjón Landsbankans vegna þessarar hegðunar nemi að minnsta kosti 5,8 milljörðum króna“

Seil ehf., stærsti hluthafi í Vinnslustöðinni hf. og hluthafi í Landsbankanum hf., leggur til við aðalfund Landsbankans hf. á morgun, fimmtudaginn 4. apríl, að rannsökuð verði aðkoma bankans og starfsmanna hans að tiltekinni tilfærslu eigna og eignarhluta félaga sem Guðmundur Kristjánsson átti að öllu leyti eða að hluta. Vísað er þar til Línuskipa ehf. (síðar XX26 ehf.), Brims hf. og Vinnslustöðvarinnar hf. á árunum 2007 til 2010.
Endurskoðunarfyrirtækið PwC tók saman skýrslu um málið að beiðni Seilar ehf. Þar koma fram vísbendingar um að þegar Línuskip voru komin í þrot hafi Landsbankinn, viðskiptabanki félagsins, hlutast til um að Guðmundur Kristjánsson héldi verðmætustu eignum Línuskipa, þ.e.a.s. útgerðarfélaginu Brimi og hlutafjáreign í Vinnslustöðinni. Grunsemdir eru um að þessar eignir hafi verið fluttar til tengdra félaga á lægra verði en gerst hefði í viðskiptum ótengdra aðila. Þetta kemur fram í Eyjafréttum.
Seil ehf. telur að tjón Landsbankans vegna þessarar hegðunar nemi að minnsta kosti 5,8 milljörðum króna. Félagið rökstyður málflutning sinn og tillögu um tilnefningu rannsóknarmanna með því að vísa í skýrslu PwC.
Jóhann Pétursson hæstaréttarlögmaður fer með málið fyrir hönd Seilar hf. Hann segir það augljóslega þjóna hagsmunum Landsbankans að rannsaka frekar niðurstöður löggiltra endurskoðenda PwC um mögulega undirverðlagningu eigna. Bankinn sjálfur búi yfir gögnum og upplýsingum sem ekki sé mögulegt að nálgast opinberlega en geti varpað ljósi á það sem þarna gerðist.
*Tillaga Seilar ehf., lögð fram á aðalfundi Landsbankans hf. 24. apríl 2019. Eyjafréttir fjölluðu ítarlega um málið.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Strandveiðar hefjist 15. mars til fyrsta október

    Ný reglugerð um strandveiðar hefur tekið gildi

    14 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Kona handtekin fyrir líkamsárás

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Líkamsárásir, fíkniefni, eignaspjöll, hótanir og vopnalagabrot

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • 30.000 fermetra Tækniskóli byggður í einum áfanga

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Fimmtug kona dæmd fyrir að nauðga pilti ítrekað

    62 deilingar
    Share 25 Tweet 16
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?