• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 30. janúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Flest slys og óhöpp verða á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. apríl 2019
in Ferðaþjónusta, Neytendur
A A
0

Flest slys og óhöpp verða á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Þar á eftir eru annars vegar tvö önnur stór gatnamót við Miklubraut (Háaleitisbraut og Grensásvegur) og hins vegar þrjú gatnamót eða hringtorg í Hafnarfirði; Hringtorg Flatahraun / Fjarðarhraun / Bæjarhraun, hringtorg Reykjanesbraut / Lækjargata og gatnamót við Kaplakrika (Reykjanesbraut / Fjarðarhraun). Þetta kemur fram í skýrslu Samgöngustofu um umferðarslys á Íslandi árið 2018.
Þegar kemur að slysum með meiðslum eru gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar einnig með flest slys. Þar á eftir eru svo gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar, gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar og gatnamót Miklubrautar og Háaleitisbrautar. Slæma vegkafla utanbæjar má annars vegar skoða út frá því hvar flest slys verða (m.v. lengd kaflans) og hins vegar hvar hæsta slysatíðnin er, þ.e. hvar flest slys verða m.v. umferðarmagn (og lengd kaflans).
Í skýrslunni kemur fram að af litið er til þeirra staða þar sem flest slys og óhöpp verða sjáum við að versti kafli landsins er stuttur kafli norðan Hvalfjarðarganga að hringtorgi. Sá kafli er aðeins 480m en á honum áttu sér stað 23 slys og óhöpp síðustu fimm árin. Lendir þessi kafli því efst á blaði bæði vegna þess hve mörg atvik eiga sér stað en einnig vegna þess hve stuttur hann er. Á eftir honum kemur svo annar stuttur kafli, kaflinn frá Leifsstöð að hringtorgi.
Ef skoðað er hvar flest slys með meiðslum eiga sér stað m.v. lengd kaflans, þá sjáum við kaflann sem er í öðru sæti yfir slys og óhöpp; kaflann frá Leifsstöð að hringtorgi. Flestir verstu kaflarnir hvað þetta varðar eru vegirnir út frá höfuðborgarsvæðinu, enda er þar mesta umferðin. Þegar skoðuð er slysatíðni, þ.e. hvar flest slys verða m.v. ekna km um veginn fást allt aðrir vegkaflar en þegar aðeins skoðaður slysafjöldi. Flest slys og óhöpp m.v. ekna km (sem er fjöldi bíla sinnum lengd vegkafla) verða á Hróarstunguvegi á Fljótsdalshéraði. Þar urðu 27 slys og óhöpp á fimm árum á 9,2km löngum kafla þar sem 74 bílar aka um að jafnaði yfir árið.
Næstu vegir þar á eftir hvað þetta varðar samkvæmt skýrslu Samgöngustofu eru Vattarnesvegur sunnan Reyðarfjarðar og Jökuldalsvegur á Fljótsdalshéraði. Því eru þrír verstu vegkaflarnir hvað þetta varðar allir á Austurlandi. Hvað varðar flest slys með meiðslum m.v. ekna km þá er Heydalsvegur (nyrðri helmingur hans) sá versti. Þar á eftir er 5 km kafli Norðfjarðarmegin við Norðfjarðargöng og vegurinn um Öxi.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • Málþóf stjórnarandstöðunnar enn á ný vegna sérhagsmuna

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Strandveiðar hefjist 15. mars til fyrsta október

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Reimar Pétursson og Matthías G. Pálsson skipaðir í embætti við Endurupptökudóm

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
  • Samráð: Veigamiklar breytingar á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu kynntar

    1 deilingar
    Share 0 Tweet 0
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?