• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 14. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Í núgildandi stjórnarskrá eru auðlindir landsins ekki nefndar einu orði''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. júní 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
,,Leitt að þessi frábæra tillaga skyldi ekki vinna í listaverkasamkeppninni um gafl þessa húss.“ Segir á vef Stjórnarskrárfélagsins sem að harmar að tillaga þeirra um að auðlindarákvæði nýrrar stjórnarskrár fengi ekki að prýða vegg Sjávarútvegshússins við Skúlagötu, en samkeppni var um tillögu að verki sem að skal prýða vegginn.
,,Þá gætu landsmenn sem ættu leið þar hjá rifjað upp hvernig auðlindaákvæðið er í nýju stjórnarskránni og jafnvel skemmt sér við að hugleiða hvort sú ömurlega staða sem nú er á Alþingi í tengslum við Orkupakka 3, væri raunin ef Alþingi hefði bara auðnast að virða niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2012 með því að leggja nýju stjórnarskrána til grundvallar sem stjórnarskrá Íslands.

Hér er auðlindaákvæðið, en munum að í núgildandi stjórnarskrá eru auðlindir landsins ekki nefndar einu orði:

„34. gr. Náttúruauðlindir
Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn getur fengið auðlindirnar, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og aldrei má selja þær eða veðsetja.
Til auðlinda í þjóðareign teljast náttúrugæði, svo sem nytjastofnar, aðrar auðlindir hafs og hafsbotns innan íslenskrar lögsögu og uppsprettur vatns- og virkjunarréttinda, jarðhita- og námaréttinda. Með lögum má kveða á um þjóðareign á auðlindum undir tiltekinni dýpt frá yfirborði jarðar.
Við nýtingu auðlindanna skal hafa sjálfbæra þróun og almannahag að leiðarljósi.
Stjórnvöld bera, ásamt þeim sem nýta auðlindirnar, ábyrgð á vernd þeirra. Stjórnvöld geta á grundvelli laga veitt leyfi til afnota eða hagnýtingar auðlinda eða annarra takmarkaðra almannagæða, gegn fullu gjaldi og til tiltekins hóflegs tíma í senn. Slík leyfi skal veita á jafnræðisgrundvelli og þau leiða aldrei til eignarréttar eða óafturkallanlegs forræðis yfir auðlindunum.“
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Næsta lægð er væntanleg

    Næsta lægð er væntanleg

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Tveir milljarðar í félagsþjónustu vegna hælisleitenda í Hafnarfirði

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Fjöldi umsækjenda um tvö embætti skrifstofustjóra

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Ríkisstjórnin boðar hækkun á greiðslubyrði verðtryggðra lána neytenda

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?